Reykhólar.

Sjá fyrir sér 800 manna samfélag á Reykhólum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Ungmennráð Reykhólahrepps fundaði 6. október. Á fundinum var fjárhagsáætlun Reykhólahrepps tekin fyrir og lagðar fram tillögur til sveitarstjórnar. T.a.m. segir í fundargerð að Ungmennaráð leggi til við sveitarstjórnina að gera ráð fyrir fjármagni í íþróttasvæði í fjárhagsáætlun næsta árs. Þar þurfi að laga svæði undir frjálsar íþróttir, laga fótboltavöllinn og klára stúkuna við völlinn. Þá leggur Ungmennaráð jafnframt til að sveitarfélagið finni stað fyrir líkamsræktarstöðina og leggi pening í að gera hana almennilega. Ungmennaráð hvetur sveitarfélagið m.a. einnig til að fjármagna aparólu, laga lagnir í sundlauginni og setja vaðlaug og láta byggja nokkur raðhús því næga vinnu sé að fá í sveitarfélaginu en ekkert húsnæði.\r\n\r\nUngmennaráð setti einnig fram framtíðarsýn ungmenna sem unnin er út frá niðurstöðum síðasta Ungmennaþings. Þar er horft 20 ár fram í tímann og segir að þá verði Reykhólaskóli með yfir 100 börn í skólanum og að yfir 800 manns búi í sveitarfélaginu. Þá verði starfræktur framhaldsskóli, stórt hótel verði eitt af meginstoðum atvinnu á svæðinu og móttaka flóttamanna sé til fyrirmyndar og þeir hafi aðlagast samfélaginu á Reykhólum vel. Þá sér ungmennaráðið fyrir sér að verslun og þjónusta hafi aukist til muna í sveitarfélaginu og ísbúð, bakarí og pizzastaður séu þar starfrækt. Þá hafi nýliðunarstyrkir í búskap hækkað verulega sem gerir ungu fólki kleift að setjast að á jörðum í sveitarfélaginu. Síðast en ekki síst tekur ráðið fram að töluverðu magni af trjám hefur verið plantað við Reykhóla og þeir séu nú skjólsæll staður.\r\n\r\nFundargerðin er aðgengileg <a href=\"https://www.reykholar.is/stjornsysla/fundagerdir/flokkur/110/\">í heild sinni á vefsíðu Reykhólahrepps</a> en á síðunni segir að það sé   <strong>„</strong>virkilega mikils virði að unga fólkið okkar hugleiði möguleika til uppbyggingar á svæðinu og fái hvatningu til að koma hugmyndunum á framfæri.”\r\n\r\n&nbsp;",
  "innerBlocks": []
}
Sjá fyrir sér 800 manna samfélag á Reykhólum - Skessuhorn