Frá samæfingu Slökkviliðs Borgarbyggðar í Skorradal sumarið 2019. Ljósm. kgk.

Ný úttekt gefur dökka mynd af stöðu slökkviliða í landinu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Brunavarnasvið Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar gaf nýverið út skýrslu um stöðu slökkviliða í landinu. Byggir hún á viðamikilli úttekt á starfsemi slökkviliða sem gerð var árið 2021. Fram kemur að ekki eru öll sveitarfélög hér á landi með slökkvilið sem er þannig skipulagt, mannað, menntað og þjálfað að það geti leyst af hendi með fullnægjandi hætti þau verkefni sem þeim eru falin lögum samkvæmt. Sum slökkvilið hafa ekki til umráða fullnægjandi búnað til að geta sinnt verkefnum sínum og einungis helmingur slökkviliða landsins uppfylla settar kröfur til að geta sinnt reykköfun og slökkvistarfi innanhúss, ýmist m.t.t. búnaðar, þjálfunar, menntunar eða hæfnisskilyrða starfsmanna. Þannig má segja að skýrslan gefi vísbendingu um fremur dökka stöðu a.m.k. helmings slökkviliða á landinu.\r\n\r\n<strong>Jafnvel ekki greitt fyrir bakvaktir</strong>\r\n\r\nSlökkvilið Borgarbyggðar og Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar eru rekin í samstarfi tveggja eða fleiri sveitarfélaga. Hin þrjú liðin eru rekin á vegum hvers sveitarfélags fyrir sig. Öll slökkvilið landshlutans eru útkallslið með stjórnendur í skilgreindu starfshlutfalli. Aðeins hjá einu af fimm slökkviliðum á Vesturlandi er tryggt að slökkviliðsstjóri eða staðgengill hans sé ávallt á vakt eða bakvakt. Hjá þremur liða var þessi liður metinn „ekki í lagi“ þar sem ekki var um bakvakt eða annað skilgreint skipulag að ræða og hjá því slökkviliði þar sem þessi þáttur þarfnaðist úrbóta var ekki greitt fyrir þær bakvaktir sem starfsmönnum var ætlað að vera á samkvæmt skipulagi. Hér er vert að nefna að í fundargerð frá nýjasta bæjarstjórnarfundi Snæfellsbæjar, 4. október, segir að komin sé krafa til bæjarfélagsins frá slökkviliðsstjóra upp á 36 milljónir vegna bakvakta, en það er bæjarstjórinn sem greinir frá því.\r\n\r\n<em>Í nýjasta tölublaði Skessuhorns sem kom út í dag er ítarlega fjallað um skýrsluna og stöðu slökkviliða á Vesturlandi eins og hún birtist í áðurnefndri skýrslu. </em>",
  "innerBlocks": []
}