
Fastir starfsmenn Skessuhorns haustið 2022. Efri röð f.v. Magnús Magnússon, Guðbjörg Ólafsdóttir, Guðrún Jónsdóttir og Valdimar K. Sigurðsson. Neðri röð f.v. Steinunn Þorvaldsdóttir, Díana Ósk Heiðarsdóttir og Gunnlaug Birta Þorgrímsdóttir.
Aukin stafræn miðlun framundan á Skessuhorni
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "<strong>Vefurinn skessuhorn.is fer brátt bak við greiðsluvegg</strong>\r\n\r\nSkessuhorn hefur verið héraðsfréttamiðill Vesturlands í rétt tæpan aldarfjórðung. Nú eru breyttir tímar í umhverfi fjölmiðla hvað varðar öflun tekna, einkum af sölu auglýsinga sem hafa að hluta til færst annað. Skessuhorni, sem og öðrum fjölmiðlum, er nauðsynlegt að bregðast við þeirri stöðu og leita nýrra leiða til að auka tekjustreymi sitt.\r\n\r\nEngin breyting er fyrirhuguð á blaðútgáfunni, áfram mun héraðsfréttablaðið Skessuhorn koma út í viku hverri ásamt rafrænni blaðútgáfu eins og verið hefur. En í lok október verður vefurinn skessuhorn.is gerður að áskriftarvef og fer þá á bak við greiðsluvegg. Allir geta samt farið inn á vefinn og skoðað sig þar um, lesið fyrirsagnir og styttri fréttir. Lengri fréttir, viðtöl í heild sinni og annað efni í hljóði og mynd verður einungis opið vefáskrifendum.\r\n\r\nMeð því að setja vefinn skessuhorn.is bak við greiðsluvegg gefst Skessuhorni tækifæri til að miðla fréttum enn örar til áskrifenda sinna en verið hefur. Um leið eykst fjölbreytni í umfjöllun og framsetningu. Í þeim tilgangi hefjast upptökur á hlaðvarpinu Skinkuhorn og munu fyrstu þættirnir líta dagsins ljós á næstu dögum. Nafnið Skinkuhorn varð fyrir valinu því það hefur sama hljómfall og Skessuhorn en er heldur spaugilegt. Það er viðeigandi þar sem hlaðvarpið verður á léttum nótum og munu þáttastjórnendur leitast við að tala við Vestlendinga sem hafa frá einhverju skemmtilegu og áhugaverðu að segja.\r\n\r\nÍ endaðan október verða þrjár áskriftarleiðir í boði; prentáskrift, rafræn blaðáskrift og vefáskrift. Allir ættu því að geta fundið áskriftarleið sem hentar. Mánaðaráskrift á vef mun kosta 1.998 krónur (sama tala og stofnár fjölmiðilsins). Áskrifendum blaðs býðst að kaupa vefáskrift á hálfvirði, eða fyrir 999 krónur á mánuði.\r\n\r\nSkessuhorn leggur nú sem áður áherslu á að vera hlutlaust og óháð útgáfufélag. Ritstjórnarstefnan verður áfram: „Að skrifa það sem íbúar vilja og þurfa að vita.“ Með því að gerast áskrifandi hjálpar þú Skessuhorni að halda áfram að starfa í þágu okkar Vestlendinga og gerir útgáfunni kleift að segja fréttir sem skipta máli, af ykkar fólki og fyrir ykkur.\r\n\r\nVerkefnið munum við kynna nánar á næstu vikum.",
"innerBlocks": []
}