Fréttir

true

Starfsfólk LMÍ jákvætt fyrir sameiningu stofnana

Í októberhefti af Kvarðanum, rafrænu fréttabréfi Landmælinga Íslands, er sagt frá því að á vegum umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins sé nú unnið að greiningu á samlegð stofnana ráðuneytisins og verkefna þeirra með það í huga að sameina stofnanir sem undir ráðuneytið heyra, sem í dag eru alls 13 að tölu samkvæmt heimasíðu ráðuneytisins. Þær eru:…Lesa meira

true

Framtíðar sundfólkið á Arena móti

Um liðna helgi fór fram Arena mót Sundfélagsins Ægis í Laugardalslaug. Kepptu þar átján sundmenn frá ÍA, tíu ára og eldri. Sundfólkið átti góða spretti og sjá mátti bætingar hjá mörgum síðan á Sprengimótinu fyrir um þremur vikum. Fimm sundmenn afrekuðu að bæta sig í öllum sínum greinum. Það voru þau Almar Sindri Danielsson Glad,…Lesa meira

true

Lækka að nýju dagpeninga fyrir fæði og gistingu í sólarhring

Ferðakostnaðarnefnd ríkisins hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:  Fyrir gistingu og fæði í einn sólarhring greiðast nú 34.500 krónur, fyrir gistingu í einn sólarhring 28.800 kr, fyrir fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag greiðast 13.600 krónur og fyrir fæði í hálfan…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði fyrir Sindra

Skallagrímur tók á móti Sindra á föstudagskvöldið í 1. deild karla í körfuknattleik og fór leikurinn fram í Fjósinu í Borgarnesi. Jafnt var á flestum tölum í fyrsta leikhluta en Skallagrímur tók smá kipp undir lok hans og var með sex stiga forystu, 22:16. Um rúman miðjan annan leikhluta komust gestirnir yfir í leiknum og…Lesa meira

true

ÍA með góðan útisigur á Þór Akureyri

Skagamenn gerðu sér góða ferð norður á föstudaginn þegar þeir mættu Þór í 1. deild karla í körfuknattleik og unnu sinn fyrsta sigur á tímabilinu, lokastaðan 74:77 fyrir ÍA. Þór byrjaði leikinn betur og skoraði fyrstu fjögur stigin en ÍA komust í 6:12 eftir rúman fimm mínútna leik. Skömmu síðar hrökk allt í baklás hjá…Lesa meira

true

Skagamenn í erfiðum málum eftir tap á móti Keflvíkingum

Keflavík og ÍA mættust í fyrstu umferð í úrslitakeppni Bestu deildar neðri hlutar í gær og fór leikurinn fram syðra. Skagamenn komust yfir á 18. mínútu leiksins þegar Benedikt V. Warén fékk boltann hægra megin, óð upp að vítateig Keflvíkinga og setti boltann með vinstri sem fór af varnarmanni og í netið, staðan 0-1 fyrir…Lesa meira

true

Forgjafarmót að Hamri

Pútthópurinn í Borgarbyggð æfir af krafti og hélt forgjafarmót að Hamri 22. september sl. Er það trúlega síðasta utanhússmótið á þessu ári, að sögn Ingimundar Ingimundarsonar. Í mótið mættu 12 konur og 13 karlar. Keppt var eftir forgjöf í ágúst. Guðrún Helga Andrésdóttir varð hlutskörpust í kvennaflokki án forgjafar með 66 högg. Önnur var Heba…Lesa meira

true

VG boðar til íbúafundar í Borgarbyggð um vindorkuver

Vindorkumálin eru mikið í deiglunni í Borgarbyggð þessi dægrin. Af því tilefni boðar Vinstri hreyfingin grænt framboð til opins fundar til að ræða vindorkumálin. Fundurinn fer fram í arinstofunni; á efstu hæð í Landnámssetrinu í Borgarnesi, þriðjudaginn 4. október og hefst klukkan 20:00. Á fundinn koma Bjarni Jónsson þingmaður Norðvesturkjördæmis, Orri Páll Jóhannsson þingflokksformaður Vinstri…Lesa meira

true

Styrktartónleikar fyrir Minningarsjóð Heimis Klemenzsonar í Reykholtskirkju

Styrktartónleikar fyrir Minningarsjóð Heimis Klemenzsonar verða haldnir í Reykholtskirkju í Borgarfirði laugardaginn 8. október klukkan 15. Fyrsta og eina úthlutun sjóðsins fór fram í desember 2020 og voru það þær Anna Þórhildur Gunnarsdóttir píanóleikari, Hanna Ágústa Olgeirsdóttir söngkona og Steinunn Þorvaldsdóttir söngkona sem hlutu þá styrk úr sjóðnum. Standa þær nú fyrir fyrirhuguðum styrktartónleikum en…Lesa meira

true

Glænýr fjallgönguáfangi í FVA

Fjölbrautaskóli Vesturlands er heilsueflandi framhaldsskóli sem leggur metnað í að bjóða nemendum upp á heilsueflandi viðburði, heilsueflandi umhverfi og holla næringu. Í takt við stefnu skólans hefur glænýr valáfangi í fjallgöngum og útivist staðið nemendum til boða á þessari haustönn. Meginmarkmið áfangans er að efla áhuga nemenda á útivist og náttúru landsins ásamt því að…Lesa meira