Fréttir

true

Kristján lætur vel af liðinni hvalvertíð

Hundrað daga hvalveiðivertíð Hvals hf. er nú lokið, hún hófst 22. júní og lauk 29. september. Kristján Loftsson forstjóri Hvals hf. segir í samtali við Skessuhorn að vel hafi gengið en þetta sumar skeri sig úr að því leyti að september var besti veiðimánuðurinn. Framan af sumri lá hvalurinn dýpra og því lengra að sigla.…Lesa meira

true

Fjórar sundkonur frá SA á Norðurlandameistaramóti Garpa

Í dag, 30. september, hefst Norðurlandameistaramót Garpa í sundi og að þessu sinni er það haldið í Þórshöfn í Færeyjum. Ísland á 40 fulltrúa frá fjórum félagsliðum, þar af fjórar sundkonur frá Sundfélagi Akraness. Það eru þær Anna Leif Elídóttir, Arnheiður Hjörleifsdóttir, Kristín Minney Pétursdóttir og Silvia Llorens Izaguirre. Alls taka um 150 sundmenn þátt…Lesa meira

true

Brekkósprettur var hlaupinn í morgun

Skólahlaup Brekkubæjarskóla á Akranesi, Brekkósprettur, fór fram í morgun og hófst upphitun fyrir framan íþróttahúsið við Vesturgötu klukkan níu. Í Brekkóspretti er hlaupinn hringur sem er upp Vesturgötu að Esjubraut, Esjubraut á Kalmansbraut, niður Kalmansbraut og Kirkjubraut að Merkigerði. Þar er hlaupið niður að Vesturgötu og að skóla. Hringurinn er um 2,2 kílómetrar að lengd…Lesa meira

true

Lausir hundar helsærðu ásetningsgimbur

Haraldur Benediktsson bóndi á Vestra-Reyni við rætur Akrafjalls greinir frá því á FB síðu sinni að nýverið hafi tveir lausir husky hundar ráðist á fé frá bænum, helsært ásetningsgimbur úr bústofninum, þannig að aflífa varð dýrið. Lögregla lét vita. Haraldur tekur í upphafi fram að hann er þakklátur hundaeigandanum fyrir að hafa látið vita af…Lesa meira

true

Skallagrími og ÍA spáð misjöfnu gengi í árlegri spá

Samkvæmt árlegri spá fyrirliða, þjálfara og formanna félaganna tíu í 1. deild karla í körfuknattleik er Skallagrími úr Borgarnesi spáð sjötta sætinu í deildinni en liði Skagamanna er spáð fallsæti. Álftanes fékk 327 stig af 360 mögulegum í spánni um lokastöðuna í 1. deild og er þar af leiðandi spáð sæti í efstu deild á…Lesa meira

true

Séra Gunnar Eiríkur næsti prófastur

Biskup Íslands hefur útnefnt sr. Gunnar Eirík Hauksson sóknarprest í Stykkishólmi sem næsta prófast í Vesturlandsprófastsdæmi. Eins og kunnugt er lét sr. Þorbjörn Hlynur Árnason af starfi sóknarprests í Borgarprestakalli nú á haustdögum en hann hefur um árabil jafnframt verið prófastur á Vesturlandi. Þessi ákvörðun biskups gildir frá morgundeginum, 1. október.Lesa meira

true

Nýtt húsnæði fyrir félagsstarf eldri borgara í Snæfellsbæ

Nú í sumar bauðst Snæfellsbæ að kaupa fjögur hús sem staðið hafa í Öskjuhlíðinni í Reykjavík og þar verið nýtt undir leikskólastarfsemi. Húsin, sem eru einingahús, buðust á mjög góðu verði og samþykkti bæjarstjórn Snæfellsbæjar samhljóða að kaupa húsin. Þau koma að góðum notum, þar sem myndast hefur töluverð þörf fyrir húsnæði fyrir félagsstarf eldri…Lesa meira

true

Einstaklingsrými endurbætt á Silfurtúni

Heilbrigðisráðherra hefur úthlutað rúmum 650 milljónum króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra í samræmi við tillögur stjórnar sjóðsins. Í tilkynningu kemur fram að áhersla hafi verið lögð á verkefni sem bæta aðbúnað íbúa á hjúkrunarheimilum, úrbætur sem tengjast aðgengismálum og öryggismálum og ýmsum stærri viðhaldsverkefnum. Alls bárust umsóknir um framlög til 60 verkefna og hlutu 54 þeirra…Lesa meira

true

Model þrjátíu ára í dag og opið fram á kvöld

Í dag fagnar verslunin Model við Þjóðbraut 1 á Akranesi þrjátíu ára afmæli sínu. Kaupmennirnir eru þeir sömu og í upphafi, hjónin Guðni Tryggvason og Hlín Sigurðardóttir. Þau ásamt starfsfólki sínu bjóða fólk velkomið en í tilefni afmælisins verður í dag hægt að kaupa alla gjafavöru og skartgripi með 30% afslætti. Opið verður til klukkan…Lesa meira

true

Nýr getraunaleikur þar sem giskað er á markafjöldann

Íslenskar getraunir hafa í samstarfi við Svenska Spel sett í loftið nýjan getraunaleik, sem ber nafnið XG, þar sem tippað er á markaskor í 13 knattspyrnu leikjum. Tippað er á hversu mörg mörk verða skoruð í heildina í hverjum leik fyrir sig eða frá 0 og upp í 7 mörk eða fleiri. „Potturinn fyrir 13…Lesa meira