Hjúkrunarheimilið Silfurtún í Búðardal. Ljósm. úr safni

Einstaklingsrými endurbætt á Silfurtúni

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Heilbrigðisráðherra hefur úthlutað rúmum 650 milljónum króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra í samræmi við tillögur stjórnar sjóðsins. Í tilkynningu kemur fram að áhersla hafi verið lögð á verkefni sem bæta aðbúnað íbúa á hjúkrunarheimilum, úrbætur sem tengjast aðgengismálum og öryggismálum og ýmsum stærri viðhaldsverkefnum. Alls bárust umsóknir um framlög til 60 verkefna og hlutu 54 þeirra styrki. Hæstu framlögin renna til hjúkrunarheimila Sjómannadagsráðs, alls um 250 milljónir króna til 14 mismunandi verkefna. Við úthlutun úr sjóðnum að þessu sinni kemur fram að innan við eitt prósent af úthlutuðu fjármagni rennur til hjúkrunarheimila á Vesturlandi. Silfurtún í Búðardal fær um sex milljónir króna til viðhalds og endurbóta á einstaklingsrýmum og hreinlætisaðstöðu á heimilinu.",
  "innerBlocks": []
}
Einstaklingsrými endurbætt á Silfurtúni - Skessuhorn