Fréttir

true

Húsmóðir óskast á Höfða

Höfði, hjúkrunar- og dvalarheimili á Akranesi, auglýsti í síðustu viku stöðu húsmóður lausa til umsóknar og hefur auglýsingin vakið nokkra athygli. Skessuhorn heyrði hljóðið í Kjartani Kjartanssyni framkvæmdastjóra Höfða og spurði hann aðeins út í auglýsinguna. Áður fyrr var húsmóðir notað yfir konur sem störfuðu heima og sáu um öll verk heimilisins. Er þetta ný…Lesa meira

true

Miklar annir hjá þyrlusveitum Gæslunnar

Fyrir og um síðustu helgi bárust Landhelgisgæslunni fjölmörg útköll til sjós og lands. Meðal annars voru a.m.k. tvö útköll á Vesturland. Föstudagurinn reyndist sérlega annasamur. Um morguninn var óskað eftir aðstoð sveitarinnar vegna veikinda um borð í fiskiskipi sem var statt 80 sjómílur norður af Grímsey. Vegna fjarlægðar frá landi voru tvær þyrlur sendar norður,…Lesa meira

true

Skagakonur með góðan sigur á Völsungi

Völsungur og ÍA mættust í gær í úrslitakeppni efri hluta 2. deildar kvenna í knattspyrnu og fór viðureignin fram á Húsavík. Fyrir leik átti Völsungur enn von um að komast upp í Lengjudeildina með sigri í leiknum en Skagakonur voru meira að spila upp á stoltið. Aðstoðarþjálfarinn Aldís Ylfa Heimisdóttir var við stjórnvölinn hjá ÍA…Lesa meira

true

Kári lauk tímabilinu á góðum nótum

Kári og Víðir áttust við á föstudaginn í síðustu umferð 3. deildar karla í knattspyrnu á þessu tímabili og fór leikurinn fram í Akraneshöllinni. Káramenn komu ákveðnir til leiks og komust strax yfir á níundu mínútu með marki Kolbeins Tuma Sveinssonar. Eftir rúman hálftíma leik var Kolbeinn Tumi aftur á ferðinni með sitt annað mark…Lesa meira

true

Víkingur Ó vann Hauka í síðasta leik tímabilsins

Víkingur Ólafsvík tók á móti Haukum úr Hafnarfirði á laugardaginn í lokaumferð 2. deildar karla í knattspyrnu og unnu heimamenn þægilegan sigur, 3-0. Mitchell Reece kom Víkingi yfir eftir tæplega hálftíma leik og þannig var staðan í hálfleik. Fyrirliðinn Bjartur Bjarmi Barkarson bætti við öðru marki fyrir heimamenn eftir klukkutíma leik og fjórum mínútum síðar…Lesa meira

true

Flotgirðing utan um dýpkunarprammann

Björgunarskipið Björg er nú búið að draga út flotgirðingu í kringum dýpkunarprammann í Rifshöfn. Girðingunni er ætlað að koma í veg fyrir dreifingu olíu frá prammanum ef hún fer að leka. Á svæðinu eru hafnarstarfsmenn, björgunarsveitarfólk og slökkviliðsmenn. Pramminn er hægt og rólega að sökkva dýpra í höfnina og óttast menn að hann fari á…Lesa meira

true

Dýpkunarprammi að sökkva í Rifshöfn

Talsverður viðbúnaður er nú í Rifshöfn þar sem dýpkunarprammi sem notaður er til að moka efni upp úr höfninni um borð í skip, er við það að sökkva. Unnið hefur verið við dýpkun innsiglingarinnar í höfnina. Við verkið er notuð grafa sem hvílir á flothylkjum og virðist leki hafa komið að þeim. Slökkvilið Snæfellsbæjar er…Lesa meira

true

Skagamenn skoruðu öll mörkin á móti Leikni

ÍA og Leiknir Reykjavík mættust í miklum fallbaráttuslag á laugardaginn í lokaumferð Bestu deildar karla í knattspyrnu og fór leikurinn fram í bongóblíðu á Akranesvelli. Fátt var um fína drætti í fyrri hálfleiknum, Leiknismenn voru meira með boltann en ógnuðu lítið. Það dró svo til tíðinda undir lok fyrri hálfleiks þegar Gísli Laxdal Unnarsson fékk…Lesa meira

true

Ómar Ragnarsson hlaut viðurkenningu Sigríðar í Brattholti

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, veitti á föstudaginn Ómari Ragnarssyni Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti. Er þetta í þrettánda sinn sem þessi viðurkenning er afhent. Verðlaunin eru ætíð afhent á Degi náttúrunnar sem ákveðið var á sínum tíma að hafa á afmælisdegi Ómars honum til heiðurs. Ómar Ragnarsson er landsmönnum að góðu kunnur. Hann…Lesa meira

true

Styrkja samtökin Móðurmál vegna tvítyngdra barna

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur styrkt samtökin Móðurmál um 15 milljónir króna. Styrkurinn er liður í aðgerðum stjórnvalda vegna barna á flótta og barna af erlendum uppruna. Móðurmál eru samtök um tvítyngi sem kenna móðurmál önnur en íslensku, styðja við og taka þátt í rannsóknum á virku tvítyngi í samfélaginu. Þau hafa boðið upp á kennslu fyrir fjöltyngd börn…Lesa meira