Þyrla Landhelgisgæslunnar flaug á sunnudaginn til móts við sjúkrabíl sem flutti veikan einstakling úr Dölum. Lögregla lokaði bílastæðinu við Bauluna í Stafholtstungum þar sem þyrlan gat lent og tekið sjúklinginn um borð. Hér er hún að hefja sig til flugs að nýju. Ljósm. mm.

Miklar annir hjá þyrlusveitum Gæslunnar

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Fyrir og um síðustu helgi bárust Landhelgisgæslunni fjölmörg útköll til sjós og lands. Meðal annars voru a.m.k. tvö útköll á Vesturland. Föstudagurinn reyndist sérlega annasamur. Um morguninn var óskað eftir aðstoð sveitarinnar vegna veikinda um borð í fiskiskipi sem var statt 80 sjómílur norður af Grímsey. Vegna fjarlægðar frá landi voru tvær þyrlur sendar norður, önnur annaðist útkallið sjálft á meðan hin var til taks í Grímsey.\r\n\r\nÞá var ökumaður bíls sem lent hafði í árekstri sóttur á Mýrar. Raunar fóru tvær þyrlur í það útkall. Á leiðinni á vettvang slyssins bárust stjórnstöð Landhelgisgæslunnar tvær beiðnir um aðkomu þyrlusveitar til viðbótar. Annars vegar vegna göngumanns í sjálfheldu fyrir ofan Hofsós og hins vegar vegna slasaðs smala ofan við Mórudal á Barðaströnd. „Nokkuð óvanalegt er að þyrlusveitin annist jafn mörg útköll og raunin var á föstudaginn, en þó kemur það stöku sinnum fyrir,“ sagði í frétt á vef Gæslunnar.",
  "innerBlocks": []
}
Miklar annir hjá þyrlusveitum Gæslunnar - Skessuhorn