Fréttir

true

Fyrstu greiðslur Spretthóps berast bændum

Samkvæmt tillögum svokallaðs spretthóps, sem Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra setti á laggirnar vegna alvarlegrar stöðu landbúnaðar, voru fyrstu greiðslur greiddar út í síðustu viku. Greitt var álag á gæðastýringu í sauðfjárrækt ásamt álagi á framlög til geitfjárræktar, samtals 895 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að gripagreiðslur í nautgriparækt verði greiddar í þessari viku en þær…Lesa meira

true

„Við elskum leikinn og elskum íþróttir“

Blaðamaður kíkti í kvöldkaffi til Hermanns Geirs og Freydísar sem fluttu frá Grundarfirði á Akranes fyrir síðustu áramót Hjónin Hermann Geir Þórsson og Freydís Bjarnadóttir eru nýflutt frá Grundarfirði á Akranes. Eftir að hafa búið í Grundarfirði síðustu 13 ár hleyptu þau heimdraganum og fluttu með fjölskylduna á Skagann um síðustu áramót. Þau eiga þrjá…Lesa meira

true

Réttir standa nú sem hæst – Myndir

Við höldum áfram að birta myndir úr réttum á Vesturlandi, en fyrstu réttir í landshlutanum voru 3. september. Í síðustu viku var réttað á nokkrum stöðum. Smalamennskur gengu almennt vel en þó lentu gangnamenn á nokkrum stöðum í vandræðum um síðustu helgi vegna þoku, m.a. á Arnarvatnsheiði, Holtavörðuheiði og afrétti Þverhlíðinga og Hvítsíðunga í Borgarfirði.…Lesa meira

true

Vestanátt kynnir vindorkukosti á Vesturlandi

Vestanátt er samstarfsverkefni fjögurra vindorkufyrirtækja, þeirra Qair, Hafþórsstaða, Zephyr og EM Orku auk Norðuráls. „Verkefnið snýst um uppbyggingu grænnar raforku og orkutengdrar starfsemi á Vesturlandi. Hópurinn hefur að leiðarljósi að verðmætin, orkan og störfin sem verða til við virkjun vindorku á Vesturlandi, haldist og nýtist í nærsamfélaginu,“ segir í fréttatilkynningu. Í næstu viku mun hópurinn…Lesa meira

true

Bílslys á Snæfellsnesvegi

Bílslys átti sér stað seinnipartinn í dag á Snæfellsnesvegi, vestan við Félagsheimilið Lyngbrekku eða um 15 kílómetra vestur af Borgarnesi. Bíll keyrði á öfugum vegarhelmingi og lenti framan á bíl sem á móti kom. Tveir voru í bílnum sem keyrt var á en ekki er vitað hversu margir voru hinum bílum. Slys á fólki eru…Lesa meira

true

Menningarveisla í Borgarnesi í vetur

Landnámssetur Íslands í Borgarnesi hefur birt menningardagskrá vetrarins á heimasíðu sinni og er þar margt forvitnilegt. Nú um helgina er verkið Síldarstúlkur sýnt á Söguloftinu, en þar segir leikkonan Halldóra Guðjónsdóttir frá síldarstúlkunum á Siglufirði. Um tónlist sér harmonikuleikarinn Margrét Arnardóttir. Fyrsta nýja frumsýning vetrarins verður svo laugardaginn 24. september en þá stígur Einar Már…Lesa meira

true

Þjónustuver Borgarbyggðar flutt að Digranesgötu 2

Þjónustuver og afgreiðsla Borgarbyggðar hefur nú verið færð frá Bjarnarbraut 8 og opnað á Digranesgötu 2 í Borgarnesi. Opnunartími þjónustuversins helst óbreyttur, þar er móttaka opin alla virka daga milli kl. 10:00-15:00 og hægt er að fá afgreiðslu símleiðis alla virka daga milli kl. 9:30 – 15:00. Fjölskyldusvið Borgarbyggðar verður þó áfram staðsett á Bjarnarbraut…Lesa meira

true

Prestsvígsla í Dómkirkjunni á sunnudaginn

Prestsvígsla verður í Dómkirkjunni í Reykjavík á sunnudaginn klukkan 13. Þar verða þrír prestar vígðir til embættis. Þeirra á meðal er Heiðrún Helga Bjarnadóttir Back sem vígist til Borgarprestakalls. Hin prestsefnin eru þær Hafdís Davíðsdóttir sem vígist til Laufásprestakalls og Helga Bragadóttir sem vígist til Glerárprestakalls. Biskup Íslands frú Agnes M. Sigurðardóttir vígir vígsluþegana, vígsluvottar…Lesa meira

true

Kallar eftir ábendingum um gönguleiðir í Borgarfirði

Gísli Einarsson í Borgarnesi er forseti Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs. Hann hefur nú tekið að sér fyrir útgáfunefnd Ferðafélags Íslands að skrifa bók um gönguleiðir í uppsveitum Borgarfjarðar, en stefnt er að útgáfu hennar innan tveggja ára. Miðað er við að um eða yfir tuttugu gönguleiðum verði gerð skil í bókinnni. „Fyrsta skref er að velja gönguleiðir…Lesa meira

true

Umsóknir um framlög vegna verslana í dreifbýli

Innviðaráðuneytið hefur auglýst eftir umsóknum um framlög sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar þar sem verslanir í fámennum byggðarlögum geta sótt um. Markmiðið er að styðja við rekstur dagvöruverslana í minni byggðarlögum fjarri stórum byggðakjörnum til að viðhalda mikilvægri grunnþjónustu. Annars vegar er hægt að sækja um rekstrarstyrk og hins vegar styrk til búnaðarkaupa.…Lesa meira