Gísli við nýtt gönguleiðarkort á Bifröst sem vísar göngufólki á Vatnaleið. Ljósm. FFB.

Kallar eftir ábendingum um gönguleiðir í Borgarfirði

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Gísli Einarsson í Borgarnesi er forseti Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs. Hann hefur nú tekið að sér fyrir útgáfunefnd Ferðafélags Íslands að skrifa bók um gönguleiðir í uppsveitum Borgarfjarðar, en stefnt er að útgáfu hennar innan tveggja ára. Miðað er við að um eða yfir tuttugu gönguleiðum verði gerð skil í bókinnni.\r\n\r\n„Fyrsta skref er að velja gönguleiðir og þessvegna leita ég til fróðra manna um ábendingar/hugmyndir að gönguleiðum á svæðinu frá Hvalfjarðarbotni að Arnarvatnsheiði. Allar tegundir gönguleiða koma til greina; lengri og skemmri og öll erfiðleikastig, hringleiðir eða beinar línur og svo framvegis,“ segir Gísli. Bendir hann á að ábendingum fylgi engin ábyrgð og ekkert verði sett á prent um gönguleiðir án samráðs við landeigendur og aðra sem kunna að eiga hagsmuna að gæta.",
  "innerBlocks": []
}
Kallar eftir ábendingum um gönguleiðir í Borgarfirði - Skessuhorn