
Þær Silja Katrín, Júlíana Dögg og Fanney María voru í miklu stuði. Hér á réttarveggnum eftir að hafa hjálpað langömmu að draga féð hennar. Ljósm. mm.
Réttir standa nú sem hæst – Myndir
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Við höldum áfram að birta myndir úr réttum á Vesturlandi, en fyrstu réttir í landshlutanum voru 3. september. Í síðustu viku var réttað á nokkrum stöðum. Smalamennskur gengu almennt vel en þó lentu gangnamenn á nokkrum stöðum í vandræðum um síðustu helgi vegna þoku, m.a. á Arnarvatnsheiði, Holtavörðuheiði og afrétti Þverhlíðinga og Hvítsíðunga í Borgarfirði. Því er gert ráð fyrir að margt fé hafi orðið eftir og bíður seinni leita. Þannig voru t.d. dæmi um að bændur fengu einungis um helming fjárins í Þverárrétt. Áfram verður leitað og réttað í landshlutanum næstu daga og við hvetjum fólk til þess að senda okkur myndir á skessuhorn@skessuhorn.is\r\n\r\nHér eru nokkrar myndir úr þeim réttum sem voru síðustu helgi.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"medium\" ids=\"56238,56239,56240,56241,56242,56243,56244,56245\"]",
"innerBlocks": []
}