{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Landnámssetur Íslands í Borgarnesi hefur birt menningardagskrá vetrarins á heimasíðu sinni og er þar margt forvitnilegt. Nú um helgina er verkið Síldarstúlkur sýnt á Söguloftinu, en þar segir leikkonan Halldóra Guðjónsdóttir frá síldarstúlkunum á Siglufirði. Um tónlist sér harmonikuleikarinn Margrét Arnardóttir.\r\n\r\nFyrsta nýja frumsýning vetrarins verður svo laugardaginn 24. september en þá stígur Einar Már Guðmundsson á stokk og segir sögur af Jörundi hundadagakonungi í sýningu sem hann kallar 1809 – en það ár gerði Jörundur byltingu á Íslandi.\r\n\r\nFimmtudaginn 6. október sækir Mugison Borgarnes heim og verður með tónleika á Söguloftinu. Hann segir sjálfur: „Held að þetta séu fyrstu tónleikarnir mínir eftir að mamma flutti frá Borganesi, það var nú svoldið næs að eiga mömmu í Borgarnesi ... Það er líka langt síðan ég spilaði á Landnámssetrinu – og í fyrsta sinn sem ég spila í salnum uppi. Hlakka mikið til og lofa stuði og stemningu, sjáumst eldhress!“\r\n\r\nSaga úr Drekkingarhyl er einleikur í fullri lengd eftir Þóru Karítas Árnadóttur og verður frumsýndur fimmtudaginn 30. október. Verkið er sérstaklega samið fyrir Söguleikhúsið til sýninga á Söguloftinu á Landnámssetrinu í Borgarnesi. Einleikurinn fjallar um Þórdísi Halldórsdóttur sem var fyrst kvenna til að vera drekkt í Drekkingarhyl.\r\n\r\nSoffia Björg verður með sóló tónleika í Arinstofu Landnámssetursins, föstudagskvöldið 11. nóvember og leikur m.a. lög af nýjustu plötu sinni, The Company You Keep.\r\n\r\nSvo er það fjölmiðlamaðurinn góði Gísli Einarsson sem treður upp á Söguloftinu eftir áramótin með Ferðabók Gísla Einarssonar sem hann byggir á Ferðabók Eggerts og Bjarna á 18. öldinni. Gísli segir að margt hafi breyst síðan þá og að tími sé kominn á að uppfæra athuganir þeirra. Hann lofar ófaglegum vinnubrögðum og að kasta hvarvetna til höndum. Útkoman er því einhverskonar mislukkað grín þar sem hæðst er á ósmekklegan hátt að einstaka byggðarlögum og íbúum þeirra. Gísli er bæði höfundur og flytjandi verksins.\r\n\r\nÁ næsta ári verður einnig frumsýnt verkið Guð leitar að Salome, þar sem Júlía Margrét Einarsdóttir stígur á stokk og segir á sinn einstaka hátt martraðarkennda uppvaxtar- og ástarsögu úr rammíslenskum veruleika, en skáldsagan Guð leitar að Salóme kom eftirminnilega við hjörtu lesenda um jólin 2021. Nú færir höfundur sálarstríð fjölskyldunnar af Skipaskaga á fjalirnar.\r\n\r\nÍ mars verður svo meginverkið Nálsbrennusaga á dagskrá og það er Einar Kárason sem flytur þá frásögn af sinni miklu snilld. Í forgrunni eru hjónin á Bergþórshvoli, Njáll og Bergþóra ásamt sonum sínum, ekki síst hinum litríka og orðheppna Skarphéðni. Njáll er friðsemdarmaður, en synir hans láta blekkjast af lygum og rógi og fremja glæp sem kallar árás yfir heimilið á Bergþórshvoli. Húsin brenna og aðalpersónur farast, en einn sleppur.\r\n\r\nLjóst er að menningin mun færa fólki góðar stundir í Landnámssetrinu í vetur.",
"innerBlocks": []
}