Umsóknir um framlög vegna verslana í dreifbýli

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Innviðaráðuneytið hefur auglýst eftir umsóknum um framlög sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar þar sem verslanir í fámennum byggðarlögum geta sótt um. Markmiðið er að styðja við rekstur dagvöruverslana í minni byggðarlögum fjarri stórum byggðakjörnum til að viðhalda mikilvægri grunnþjónustu. Annars vegar er hægt að sækja um rekstrarstyrk og hins vegar styrk til búnaðarkaupa. Allt að 30 milljónum kr. verður veitt vegna áranna 2022 og 2023. Umsækjendur skulu taka mið af úthlutunarreglum innviðaráðherra og auglýsingu um styrkina, sjá vef ráðuneytisins. Umsóknarfrestur er til miðnættis sunnudagsins 16. október nk. Þriggja manna valnefnd metur allar umsóknir og gerir tillögu til innviðaráðherra að úthlutun styrkja. Áætlað er að niðurstöður ráðherra liggi fyrir í nóvember.\r\n\r\n<a href=\"https://www.stjornarradid.is/default.aspx?pageid=e5cf150d-33a7-11e6-80c7-005056bc217f&amp;newsid=184042f6-34f8-11ed-9bb0-005056bc4727\">Sjá nánar hér.</a>",
  "innerBlocks": []
}
Umsóknir um framlög vegna verslana í dreifbýli - Skessuhorn