
Heyskapur í sumar að Hesti í Andakíl. Ljósm. mm.
Fyrstu greiðslur Spretthóps berast bændum
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Samkvæmt tillögum svokallaðs spretthóps, sem Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra setti á laggirnar vegna alvarlegrar stöðu landbúnaðar, voru fyrstu greiðslur greiddar út í síðustu viku. Greitt var álag á gæðastýringu í sauðfjárrækt ásamt álagi á framlög til geitfjárræktar, samtals 895 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að gripagreiðslur í nautgriparækt verði greiddar í þessari viku en þær nema alls 235 milljónum.\r\n\r\nSpretthópurinn lagði m.a. til að greitt yrði álag á ákveðnar greiðslur samkvæmt gildandi búvörusamningum sem og sérstakar greiðslur til stuðnings svína-, alifugla- og eggjaframleiðslu, samtals 2.460 milljónir króna. Áætlað er að aðrar álagsgreiðslur verði greiddar samkvæmt eftirfarandi tímaáætlun:\r\n\r\n<strong>September 2022</strong>\r\n\r\n20% álag á gripagreiðslur, holdakýr – 36 milljónir, greitt 21. september\r\n\r\n12% álag á gripagreiðslur – mjólkurkýr – 199 milljónir, greitt 21. september\r\n\r\nAðlögun að lífrænni framleiðslu í garðyrkju – 5 milljónir\r\n\r\n<strong>Október 2022</strong>\r\n\r\n65% álag á jarðræktarstyrki og landgreiðslur – 517 milljónir\r\n\r\n65% álag vegna útiræktaðs grænmetis – 34 milljónir\r\n\r\n<strong>Nóvember 2022</strong>\r\n\r\n75% álag á nautakjötsframleiðslu, önnur álagsgreiðsla vegna framleiðslu júlí-september – 41 milljón\r\n\r\n<strong>Febrúar 2023</strong>\r\n\r\n25% álag á beingreiðslur c í garðyrkju – 101 milljón\r\n\r\n75% álag á nautakjötsframleiðslu, þriðja álagsgreiðsla vegna framleiðslu október-desember – 41 milljón\r\n\r\nUppgjör álags á gæðastýringu fer jafnframt fram í febrúar samhliða uppgjöri almennu gæðastýringargreiðslunnar.\r\n\r\nSpretthópurinn lagði einnig til að 450 milljónum króna yrði varið til að mæta hækkun fóðurverðs hjá svína-, alifugla- og eggjaframleiðendum. Ráðuneytið vinnur að undirbúningi umsóknarferils vegna framangreindra stuðningsgreiðslna sem áætlað er að fari fram snemma árs 2023.",
"innerBlocks": []
}