{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Höfði, hjúkrunar- og dvalarheimili á Akranesi, auglýsti í síðustu viku stöðu húsmóður lausa til umsóknar og hefur auglýsingin vakið nokkra athygli. Skessuhorn heyrði hljóðið í Kjartani Kjartanssyni framkvæmdastjóra Höfða og spurði hann aðeins út í auglýsinguna. Áður fyrr var húsmóðir notað yfir konur sem störfuðu heima og sáu um öll verk heimilisins. Er þetta ný staða hjá Höfða og hver er hugsunin á bak við það að auglýsa með þessum hætti?\r\n\r\n„Starf húsmóður á Höfða er ekki ný staða því það hefur verið starfandi húsmóðir hjá okkur frá því fyrir síðustu aldamót. Núverandi húsmóðir var ráðin eftir auglýsingu árið 2013 þar sem 17 umsóknir bárust. Nú þekki ég ekki alveg forsöguna fyrir þessari nafngift en hún hefur verið til staðar í tugi ára. Nú þegar starfið losnaði að nýju fór fram umræða í stjórn Höfða um hvort ástæða væri til að breyta starfsheitinu en það var einróma niðurstaða stjórnar að halda því óbreyttu. Með því erum við að undirstrika að Höfði er heimili í kringum 70 íbúa en ekki stofnun.“\r\n\r\nÞið segið í auglýsingunni að starfið henti öllum kynjum, hefði þá ekki verið eðlilegra að auglýsa það þannig? „Eðli málsins samkvæmt geta allir sótt um stöðuna. Þess er sérstaklega getið að starfið henti öllum kynjum og nú þegar höfum við fengið góð viðbrögð við auglýsingunni,“ segir Kjartan.",
"innerBlocks": []
}