Guðlaugur Þór afhendir Ómari náttúruviðurkenningu Sigríðar í Brattholti og blóm. Ljósm. Stjórnarráðið.

Ómar Ragnarsson hlaut viðurkenningu Sigríðar í Brattholti

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, veitti á föstudaginn Ómari Ragnarssyni Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti. Er þetta í þrettánda sinn sem þessi viðurkenning er afhent. Verðlaunin eru ætíð afhent á Degi náttúrunnar sem ákveðið var á sínum tíma að hafa á afmælisdegi Ómars honum til heiðurs.\r\n\r\nÓmar Ragnarsson er landsmönnum að góðu kunnur. Hann var í störfum sínum á fjölmiðlum iðinn við að vekja athygli á hinum ýmsu náttúruperlum landsins og hóf í kjölfarið baráttu sína fyrir náttúruvernd. Í máli Guðlaugs Þórs við athöfnina á föstudaginn kom fram að Ómari væri í lófa lagið að vekja athygli á málefnum og að hann hafi fært þjóðinni hvert náttúruundrið á fætur öðru, alla leið heim í stofu. Jafnt með Stikluþáttum sínum og öðrum myndum um náttúruvernd, sem og öðru fréttaefni. Þannig hafi Ómar t.d. myndað Holuhraun áður en þar gaus og komið að Grímsvatnagosinu áður en nokkur annar hafi komið þar að. Eins hafi Ómar verið ötull við að vekja athygli á rafknúnum farartækjum hin síðari ár og hafi til að mynda ferðast árið 2015 á rafhjóli frá Reykjavík til Akureyrar, í ferðalagi sem hann nefndi „Aðgerð orkuskipti“, þá orðinn 75 ára.\r\n\r\n„Þá er Ómar brautryðjandi í notkun rafbíla á Íslandi, kynnti ef minnið svíkur ekki, rafbíl hér fyrir nokkrum áratugum síðan, og hefur undanfarin ár ekið um á rafmagnsbílum. Hann sagði einmitt í viðtali fyrir nokkrum árum, og var því á undan okkur stjórnvöldum sem nú erum að takast á við málið, að það væri ekki nóg að rafmagnsbílar væru bara fyrir þá efnameiri. Huga þyrfti að „rafbíl litla mannsins,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra í rökstuðningi sínum með verðlaununum og bætti við:\r\n\r\n„Íslensk náttúra væri svo miklu fátækari ef ekki væri fyrir eldhuga sem eru tilbúnir að leggja allt í sölurnar fyrir hana. Ég, eins og margir Íslendingar, erum svo heppin að hafa átt Ómar sem glugga inn í hluti sem eru svo ótrúlega mikilvægir en fáir sinntu. Einstaklingar skipta máli og skýrt dæmi um það er Ómar Ragnarsson. Það verður aldrei hægt að mæla hvað hann hefur gert, með sínum einstaka hætti, fyrir íslenska náttúru. Mín kynslóð og margar fleiri fengum að kynnast náttúru Íslands vegna áhuga og atorku Ómars Ragnarssonar. Fyrir það er ég þakklátur,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson.",
  "innerBlocks": []
}
Ómar Ragnarsson hlaut viðurkenningu Sigríðar í Brattholti - Skessuhorn