Fréttir

true

Fuglaflensusmit viðvarandi

Matvælastofnun varar enn við hættu á fuglaflensusmiti frá villtum fuglum yfir í alifugla. „Stofnunin lítur svo á að smit með skæðum fuglaflensuveirum sé viðloðandi í villtum fuglum víða á landinu. Þó hafa færri veikir eða dauðir villtir fuglar verið tilkynntir til Matvælastofnunar í júlí og það sem af er ágúst, en mánuðina á undan,” segir…Lesa meira

true

Jafnt hjá Magna og Víkingi Ó í markaleik

Magni og Víkingur Ólafsvík mættust í 18. umferð 2. deildar karla í knattspyrnu í gær og fór viðureignin fram fyrir norðan á Grenivíkurvelli. Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir gestina því á fyrstu mínútunni náðu heimamenn forystunni með marki Guðna Sigþórssonar en Andri Þór Sólbergsson jafnaði metin á 19. mínútu með sínu tíunda marki í deildinni…Lesa meira

true

Vinsælir fuglar óska eftir kosningastjórum

Að afstöðnu forvali fyrir Fugla ársins 2022 komust sjö fuglar áfram og óska nú eftir byr undir báða vængi í kosningabaráttu sinni. Í tilkynningu frá Fuglavernd kemur fram að þetta eru fuglarnir: Auðnutittlingur Himbrimi – kominn með kosningastjóra Hrafn Hrossagaukur Jaðrakan Kría Maríuerla „Ef þú hefur áhuga á að taka að þér að vera kosningastjóri…Lesa meira

true

100 ára knattspyrnusaga Akraness – enn hægt að skrá sig fyrir áskrift

Um mánaðamótin október/nóvember kemur út bók sem allir Skagamenn verða að lesa, sumsé bókin 100 ára knattspyrnusaga Akraness. Höfundur hennar er Skagamaðurinn og sagnfræðingurinn Björn Þór Björnsson og hefur hann víða leitað fanga svo að útkoman verður bæði skemmtileg (þó svo að stundum komi skúrir) og fræðandi. Fjölmargt kemur á óvart og margir eru kallaðir…Lesa meira

true

Ökklabrotnaði í fjallgöngu

Meðfylgjandi er mynd frá útkalli björgunarsveita og sjúkraflutningamanna á Snæfellsnesi í gær. Þeir voru fengnir til að flytja konu sem hafði ökklabrotnað þar sem hún var stödd austur af Snæfellsjökli. Búið var um hana og hún flutt með sexhjóli að sjúkrabíl við fjallsrætur. Nokkur erill var hjá björgunarsveitum á landinu um helgina. Í tilkynningu frá…Lesa meira

true

Heimilt að stofna hlutafélag um rekstur Carbfix

Eigendur Orkuveitu Reykjavíkur hafa einróma samþykkt að stofna hlutafélag um rekstur Carbfix, sem er dótturfélag OR. Tilgangurinn er að gera Carbfix mögulegt að beita tækni sinni í innlendum og alþjóðlegum verkefnum, sem stuðla að því að minnka losun CO2 út í andrúmsloftið og styðja þannig við loftslagsmarkmið Íslands og heimsins. Carbfix vinnur nú að nokkrum…Lesa meira

true

Árlegum styrkjum úthlutað til þróunar matvæla

Matvælaráðuneytið úthlutaði í síðustu viku 584,6 milljónum króna úr Matvælasjóði. Alls hljóta 58 verkefni styrki að þessu sinni, en 211 umsóknir bárust sjóðnum. Um 5% verkefnastyrkja voru tengdir Vesturlandi, en í öllum tilfellum voru það styrkir sem að einhverju leyti tengjast öðrum landshlutum einnig. Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og…Lesa meira

true

Íbúafjöldi í fyrsta sinn á fimmta þúsundið í Borgarbyggð

Íbúafjöldi á Vesturlandi hefur aukist mjög á síðustu árum og má sem dæmi nefna að fyrir tíu árum vou íbúar á Akranesi 6.578 talsins, en 1. febrúar í ár var talan hins vegar 7.845 sem er fjölgun um 1.267 íbúa á áratug. Annað dæmi er Borgarbyggð sem er næstfjölmennasta sveitarfélag Vesturlands. Þar hefur fjölgað umtalsvert…Lesa meira

true

Afar kærkominn sigur Skagamanna

Loksins kom að því! Eftir 119 eyðimerkurdaga án sigurs í Bestu deild karla í knattspyrnu náðu Skagamenn sigri en þeir unnu síðast leik í deildinni í sumar gegn Víkingi Reykjavík í 2. umferð deildarinnar 24. apríl. Í millitíðinni  var Baráttudagur verkalýðsins, Mæðradagurinn, Uppstigningardagur, Hvítasunnudagur, Sjómannadagurinn, Þjóðhátíðardagurinn, Jónsmessa, Írskir dagar, Verslunarmannahelgin, Menningarnótt og ýmislegt annað sem…Lesa meira

true

Boðar hvata til þeirra sem rafvæða strandveiðibátana sína

Að ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra hafa verið kynnt í samráðsgátt stjórnvalda tvö áform um lagasetningu sem ætlað er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda fiskiveiðiflotans og hraða orkuskiptum í samræmi við markmið stjórnvalda. Markmið stjórnvalda er að Ísland nái kolefnishlutleysi og fullum orkuskiptum eigi síðar en árið 2040 og verði þá óháð jarðefnaeldsneyti fyrst ríkja. Meðal…Lesa meira