
Kynslóðir komu saman þegar Akraneshöllin var vígð í september 2010. Ljósm. mm.
100 ára knattspyrnusaga Akraness – enn hægt að skrá sig fyrir áskrift
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Um mánaðamótin október/nóvember kemur út bók sem allir Skagamenn verða að lesa, sumsé bókin 100 ára knattspyrnusaga Akraness. Höfundur hennar er Skagamaðurinn og sagnfræðingurinn Björn Þór Björnsson og hefur hann víða leitað fanga svo að útkoman verður bæði skemmtileg (þó svo að stundum komi skúrir) og fræðandi. Fjölmargt kemur á óvart og margir eru kallaðir út á völlinn, karlar og konur. Þá prýða bókina margar myndir sem mikill fengur er að.\r\n\r\nÞað er von þeirra sem standa að bókinni að hún fái góðar viðtökur og hefur söfnun áskrifenda gengið vel. Enn er hægt að skrá sig fyrir áskrift að bókinni og kostar hún 7.500 kr. Nöfn viðkomandi munu þá birtast aftast í bókinni undir „Baráttukveðjum til knattspyrnufólks á Akranesi“. Hægt er að gerast áskrifandi í netfanginu: holar@holabok.is eða hringja í síma 692-8505 eftir klukkan 16 á daginn. Gefa þarf upp fullt nafn (nöfn ef fleiri en einn úr sömu fjölskyldu vill vera með í baráttukveðjunum), heimilisfang og kennitölu, en áskriftargjaldið verður innheimt í gegnum heimabanka.\r\n\r\nÞað er Bókaútgáfan Hólar sem gefur bókina út og auðvitað væri það vel þegið ef þið létuð þessi tíðindi berast sem víðast, með því að deila á facebook og láta þau vita sem kynnu að hafa áhuga á bókinni, en eru kannski ekki dagsdaglega á netinu.\r\n\r\n<strong>Koma svo! Áfram ÍA!</strong>\r\n\r\n<em>-fréttatilkynning</em>",
"innerBlocks": []
}