Frá rótum jökulsins þegar ökklabrotin kona var borin síðasta spölinn í sjúkrabíl. Ljósm. Landsbjörg.

Ökklabrotnaði í fjallgöngu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Meðfylgjandi er mynd frá útkalli björgunarsveita og sjúkraflutningamanna á Snæfellsnesi í gær. Þeir voru fengnir til að flytja konu sem hafði ökklabrotnað þar sem hún var stödd austur af Snæfellsjökli. Búið var um hana og hún flutt með sexhjóli að sjúkrabíl við fjallsrætur.\r\n\r\nNokkur erill var hjá björgunarsveitum á landinu um helgina. Í tilkynningu frá Landsbjörgu segir að meðal annars hafi þurft að koma til aðstoðar konu sem hafði örmagnast á göngu á Kattarhryggjum í Þórsmörk. Sjálfboðaliðar björgunarsveitanna komu ökumönnum fjögurra bíla til aðstoðar sem höfðu fest bíla sína á hálendi og í ám. Í Hólmsá að Fjallabaki og Þríhyrningsá á Austurlandi höfðu ökumenn fest bíla sína, á Sprengisandsleið var bíll fastur í leðju og björgunarsveitarfólk flutti farþega úr biluðum bíl á Hlöðufellsvegi á Suðurlandi. Nokkuð var um að aðstoða þurfti sjúkraflutningamenn við að flytja slasaða einstaklinga. Meðal annars við Svartafoss og Stórhöfða í Vestamannaeyjum auk fyrrgreinds óhapps við Snæfellsjökul.\r\n\r\nSnemma morguns á sunnudegi voru kaldir og hraktir göngumenn sóttir í Kistufellsskála og þeim komið til byggða og eftir hádegi sama dag kom björgunarsveitarfólk bónda til aðstoðar við að reka hjörð af nautgripum fyrir Tungufljót.",
  "innerBlocks": []
}
Ökklabrotnaði í fjallgöngu - Skessuhorn