
Borgarnes. Ljósm. mm.
Íbúafjöldi í fyrsta sinn á fimmta þúsundið í Borgarbyggð
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Íbúafjöldi á Vesturlandi hefur aukist mjög á síðustu árum og má sem dæmi nefna að fyrir tíu árum vou íbúar á Akranesi 6.578 talsins, en 1. febrúar í ár var talan hins vegar 7.845 sem er fjölgun um 1.267 íbúa á áratug. Annað dæmi er Borgarbyggð sem er næstfjölmennasta sveitarfélag Vesturlands. Þar hefur fjölgað umtalsvert á síðustu tíu árum, þar af mest í Borgarnesi þar sem íbúatalan hefur farið úr 1.763 í ársbyrjun árið 2012 yfir í 2.152 í upphafi þessa árs. Er það aukning um 389 íbúa. Íbúar í Borgarbyggð voru 3.470 að tölu fyrir tíu árum en töldust vera 3.865 1. febrúar síðastliðinn. Verið er að fara yfir tölur um íbúafjölda frá því í sumar, en líkur eru til þess að þá hafi íbúafjöldi í sveitarfélaginu komist í fyrsta sinn yfir fjögur þúsund íbúa markið.\r\n\r\nSkessuhorn hafði samband við Stefán Brodda Guðjónsson sveitarstjóra sem sagði að verið væri að rýna nýjustu íbúatölur og að það yrði tilhlökkunarefni ef hægt yrði að gleðjast með tímamótaíbúa númer 4000 innan tíðar. Hann bætti því kíminn við að vonandi reyndist það ekki hafa verið hann sjálfur, en hann flutti lögheimili sitt í sveitarfélagið nýlega.",
"innerBlocks": []
}