
Haukur Andri Haraldsson var hetja Skagamanna í kvöld. Hér í leik á móti KA um síðustu helgi. Ljósm. Lárus Árni Wöhler
Afar kærkominn sigur Skagamanna
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Loksins kom að því! Eftir 119 eyðimerkurdaga án sigurs í Bestu deild karla í knattspyrnu náðu Skagamenn sigri en þeir unnu síðast leik í deildinni í sumar gegn Víkingi Reykjavík í 2. umferð deildarinnar 24. apríl. Í millitíðinni var Baráttudagur verkalýðsins, Mæðradagurinn, Uppstigningardagur, Hvítasunnudagur, Sjómannadagurinn, Þjóðhátíðardagurinn, Jónsmessa, Írskir dagar, Verslunarmannahelgin, Menningarnótt og ýmislegt annað sem enginn vill muna sem hefur á dagana drifið á þessum tíma en þá að leiknum. Fyrir leik ÍA og ÍBV í dag höfðu Skagamenn tapað sjö leikjum í röð í deildinni og nálguðust vafasamt met en gleymum því bara. Kristian Lindberg skoraði eina mark fyrri hálfleiks þegar hann fylgdi eftir skoti Gísla Laxdals Unnarssonar eftir rúmlega hálftíma leik. Annars var fyrri hálfleikurinn nokkuð fjörugur og kaflaskiptur, heimamenn voru sterkari fyrri hlutann og gestirnir þann seinni en staðan í leikhléi 1-0 fyrir ÍA.\r\n\r\nSeinni hálfleikur var varla byrjaður þegar Andri Rúnar Bjarnason hafði jafnað fyrir Eyjamenn og allt orðið jafnt. Liðin skiptust á að sækja næsta hálftímann en síðasta stundarfjórðunginn gerðu Skagamenn sig mun líklegri til að ná sigri. Fjórum mínútum fyrir leikslok gerði Árni Marinó Einarsson vel þegar hann varði vel frá Guðjóni Erni Hrafnkelssyni Eyjamanni en tveimur mínútum síðar kom sigurmark leiksins. Hinn 16 ára gamli Haukur Andri Haraldsson var réttur maður á réttum stað á réttum tíma þegar boltinn barst til hans innan vítateigs og kláraði vel færið. Smá hiti var í mönnum á lokamínútunum en heimamenn héldu þetta út og niðurstaðan frábær 2-1 sigur Skagamanna.\r\n\r\nStaðan í neðri hluta deildarinnar er nú þannig að ÍBV er með 15 stig eftir 18 leiki, FH og ÍA með ellefu stig en FH leik minna og neðst er Leiknir R. með tíu stig og á tvo leiki til góða. Næsti leikur Skagamanna er á móti Keflavík næsta sunnudag á HS Orku vellinum í Keflavík og hefst klukkan 17.",
"innerBlocks": []
}