"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Matvælaráðuneytið úthlutaði í síðustu viku 584,6 milljónum króna úr Matvælasjóði. Alls hljóta 58 verkefni styrki að þessu sinni, en 211 umsóknir bárust sjóðnum. Um 5% verkefnastyrkja voru tengdir Vesturlandi, en í öllum tilfellum voru það styrkir sem að einhverju leyti tengjast öðrum landshlutum einnig. Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla og hliðarafurða úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Áhersla er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvæla. Sjóðnum er einnig heimilt að styðja við vöruþróun og markaðssókn á erlendum mörkuðum. Sjóðurinn fylgir eftir heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Í þessum tilgangi eru styrkt verkefni og rannsóknir einstaklinga og lögaðila.\r\n\r\nMeðal þeirra verkefna sem fengu úthlutun má nefna:\r\n
\r\n \t
Hringrásarhænur í bakgörðum
\r\n \t
Þróa sælkeravöru úr lamba- og kindaslögum
\r\n \t
Markaðsátak í útflutningi á íslensku viskýi
\r\n \t
Aukin bragðgæði og áferð íslensks fisks með hægmeyrnun
\r\n \t
Visthæfing landeldis
\r\n \t
Bætiefnadrykkir með íslenskum þörungum
\r\n \t
Eftirlit og upprunavottun fyrir íslenskar saltfisksfurðir
\r\n \t
Próteinframleiðsla úr grasi
\r\n \t
Frumþróun bragðefna úr þangi fyrir austurlenskan mat
\r\n \t
Viðskiptaáætlun fyrir mjólkurfé og sauðaostagerð
\r\n \t
Folaldajerky og -hrápylsur
\r\n \t
Verðmætasköpun úr hliðarafurðum bjórgerðar
\r\n
\r\nÁ réttri leið sem matvælaland\r\n\r\n„Sá sköpunarkraftur og sú áræðni sem íslenskir matvælaframleiðendur búa yfir er sérstakt ánægjuefni og sýnir áþreifanlega að Ísland er á réttri leið sem matvælaland. Það gleður mig einnig að sjá að hlutföll á milli kynja eru nær jöfn,“ segir Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra í tilkynningu sem send var úr ráðuneyti hennar.\r\n\r\nFjórir sjóðir\r\n\r\nOpnað verður fyrir umsóknir fyrir næstu úthlutun úr Matvælasjóði á vormánuðum 2023. Matvælasjóður veitir styrki í fjórum styrkjaflokkum: Báru, Keldu, Afurð og Fjársjóði. Fyrir þá sem vilja undirbúa umsókn er skilgreining þeirra þannig:\r\n\r\nBára\r\n\r\nBára styrkir verkefni á hugmyndastigi. Styrkþegar geta verið fyrirtæki sem stofnuð eru á síðustu fimm árum. Einnig frumkvöðlar sem vilja þróa hugmynd, hráefni eða aðferðir sem tengjast íslenskri matvælaframleiðslu.\r\n\r\nKelda\r\n\r\nKelda styrkir verkefni sem miða að því að afla nýrrar þekkingar sem styður við markmið sjóðsins um nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu.\r\n\r\nAfurð\r\n\r\nAfurð styrkir verkefni sem komin eru af hugmyndastigi en eru þó ekki tilbúin til markaðssetningar. Styrkveitingar miða að því að gefa styrkþegum tækifæri til að móta og þróa afurðir úr hráefnum sem falla til við matvælaframleiðslu og stuðla þar með að verðmætasköpun.\r\n\r\nFjársjóður\r\n\r\nFjársjóður styrkir verkefni sem hafa það markmiði að styrkja markaðsinnviði og stuðla að markaðssókn afurða tengdum íslenskri matvælaframleiðslu.",
"innerBlocks": []

Árlegum styrkjum úthlutað til þróunar matvæla - Skessuhorn