Fréttir

true

Skólasetning í Auðarskóla í Búðardal er þriðjudaginn 23. ágúst

Skólasetning Auðarskóla í Dölum fer fram þriðjudaginn 23. ágúst og kennsla hefst samkvæmt stundaskrá morguninn eftir, miðvikudaginn 24. ágúst. Nemendur skólans verða 88 talsins í vetur og er það svipaður fjöldi og verið hefur. Herdís Erna Gunnarsdóttir er nýr skólastjóri Auðarskóla og hún segir að vel hafi gengið að manna starfslið skólans fyrir veturinn. „Það…Lesa meira

true

Grunnskólinn í Stykkishólmi verður settur miðvikudaginn 24. ágúst

Setningarathöfn Grunnskólans í Stykkishólmi fer fram miðvikudaginn 24. ágúst klukkan 10 fyrir 1.-7. bekk og klukkan 11 fyrir 8.-10. bekk. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá daginn eftir, fimmtudaginn 25. ágúst. Vel hefur gengið að manna lausar stöður við skólann og er ráðningum lokið utan einnar stöðu sem enn er auglýst, það er staða kennara í list-…Lesa meira

true

Framhaldsskólarnir á Vesturlandi að hefja vetrarstarfið

Skólastarf er nú að hefjast um landsbyggðina alla en á Vesturlandi eru þrír framhaldsskólar, auk bændadeildarinnar við LbhÍ á Hvanneyri; Fjölbrautaskóli Snæfellinga í Grundarfirði, Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi og Menntaskóli Borgarfjarðar í Borgarnesi. Hefjast skólarnir allir nú í vikunni. Aðsókn í skólana er góð þetta haustið og talsverð nýsköpun í gangi hjá þeim. Skessuhorn tók…Lesa meira

true

Víkingur Ó og Þróttur R gerðu jafntefli í markaleik

Víkingur Ólafsvík tók á móti Þrótti Reykjavík í 2. deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi og fór leikurinn fram á Ólafsvíkurvelli. Þróttur er í öðru sæti deildarinnar í mikilli baráttu við Völsung um að komast upp með Njarðvík í Bestu deildina á meðan Víkingur er að gera sitt besta til að losna við falldrauginn. Þróttur…Lesa meira

true

Eini báturinn á makrílveiðum frá Ólafsvík

Báturinn Júlli Páls SH byrjaði nýverið makrílveiðar frá Ólafsvík. Hefur hann aflað ágætlega, eða upp í sex tonn yfir daginn. Var hann aflahæsti löndunarbáturinn í Ólafsvík í liðinni viku. Bárður Jóhönnuson skipstjóri segir að veiðarnar gangi þolanlega en það sé hins vegar erfitt að vera eini báturinn á þessum veiðum. Því þurfi að leita makrílinn…Lesa meira

true

Laugargerðisskóli hefst að morgni mánudagsins 22. ágúst

Engin eiginleg skólasetning er í Laugargerðisskóla en skólastarf hefst að morgni 22. ágúst. Nemendur mæta þá með skólabíl í skólann eins og aðra daga ársins en dagurinn verður styttri en á að venjast og óformlegri. Mikil breyting varð á starfsliði skólans nú í sumar. Þrjár kennarastöður eru við skólann og ráðnir voru inn nýir kennarar…Lesa meira

true

Lagareldi er nýyrði yfir eldi í vatni

Samkvæmt ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra er hafin vinna við gerð skýrslu á stöðu lagareldis hér á landi. Lagareldi er nýyrði í málinu og verður yfirheiti yfir sjókvía-, land-, þörunga- og úthafseldi. Ljúka á við skýrsluna í nóvember á þessu ári. Að undangengnu útboði hefur matvælaráðuneytið samið við bandaríska ráðgjafafyrirtækið Boston Consulting Group Nordic AB um…Lesa meira

true

FISK Seafood gefur Háskólanum á Hólum húsnæði sitt í Hjaltadal

Gengið hefur verið frá samkomulagi á milli Háskólans á Hólum og FISK Seafood ehf. á Sauðárkróki um nýtt húsnæði fyrir Fiskeldis- og fiskalíffræðideild skólans. Starfsemin hefur um langt árabil verið rekin með stuðningi FISK Seafood í húsnæði félagsins á Sauðárkróki en mun á næsta ári færast í tæplega tvö þúsund fermetra í nágrenni skólans í…Lesa meira

true

Íslandsmót í hrútadómum verður á sunnudaginn

Átjánda Íslandsmótið í hrútadómum verður haldið á Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum sunnudaginn 21. ágúst næstkomandi og hefst kl. 14:00. „Þessari skemmtilegu keppni hefur verið aflýst tvö ár í röð vegna sóttvarnatakmarkana, en verður nú endurvakin,“ segir í tilkynningu. „Hrútaþuklið er stærsti viðburðurinn í starfi Sauðfjársetursins. Hingað hefur streymt fólk alls staðar að af landinu,…Lesa meira