Fréttir

true

Víkingur Ólafsvík með góðan sigur á Ægi

Víkingur tók á móti liði Ægis á Ólafsvíkurvelli í 2. deild karla í knattspyrnu á föstudagskvöldið og vann öruggan sigur 5-2. Fyrsta mark leiksins kom þó ekki fyrr en á lokamínútu fyrri hálfleiks þegar Mikael Hrafn Helgason kom heimamönnum yfir og staðan í hálfleik 1-0 fyrir Víking. Það var aðeins meira fjör í seinni hálfleik…Lesa meira

true

Skagamenn komnir í botnsæti Bestu deildarinnar

Sunnudagurinn 24. apríl er dagurinn sem ÍA vann sinn eina leik til þessa í Bestu deild karla í knattspyrnu í sumar þegar þeir lögðu Íslandsmeistara Víkings 3-0 á heimavelli. Síðan þá hafa þeir gert fjögur jafntefli og tapað sjö leikjum í deildinni og staðan orðin virkilega erfið hjá liðinu þegar níu leikir eru eftir í…Lesa meira

true

Mótmæla fyrirhuguðum vindmyllugarði á Brekkukambi

Stór hópur íbúa og sumarhúsaeigenda í Hvalfjarðarveit hefur ritað nafn sitt á undirskriftalista þar sem skorað er á sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar og Skipulagsstofnun að hafna því að veita leyfi til að setja upp vindmyllugarða á toppi Brekkukambs í Hvalfirði. Arnfinnur Jónasson er í hópi þeirra sem standa að undirskriftasöfnuninni. Hann skrifar á FB síðu sína að…Lesa meira

true

Maðurinn fannst heill á húfi

Í gær hóf Lögreglan á Vesturlandi eftirgrennslan að karlmanni sem hvarf frá heimili sínu á laugardaginn. Síðast sást til ferða hans við Grenjar á Mýrum á laugardagskvöldið. Björgunarsveitir voru á tólfta tímanum í gærkvöldi kallaðar til leitar í nágrenni Brókarvatns. Skömmu eftir miðnætti fannst svo maðurinn heill á húfi. Lögreglan vill koma á framfæri þökkum…Lesa meira

true

Nýjar reglur varðandi strandveiðar

Eins og fram kom í síðasta Skessuhorni hefur Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra ákveðið að auka aflaheimildir í strandveiðum um 1.074 tonn af þorski. Einnig hefur ráðherra komið á þeirri breytingu að Fiskistofa mun fella strandveiðileyfi úr gildi þegar strandveiðar verða stöðvaðar síðar í sumar. Í því felst að heimilt verður að stunda veiðar á grundvelli annarra…Lesa meira

true

Sæbjúgnaveiðar verða nú kvótasettar

Með lögum sem samþykkt voru á Alþingi 15. júní síðastliðinn er mælt fyrir um að setja skipum aflahlutdeild í sæbjúgum, skipt niður á veiðisvæði miðað við veiðireynslu á fiskveiðiárunum frá 2018 til og með 2021. Í skjali sem Fiskistofa birtir á heimasíðu sinni má sjá að samtals tíu bátar hafa landað sæbjúgum á þessu tímabili.…Lesa meira

true

Starfshópi ætlað að móta tillögur um beislun vindorku

Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur skipað þriggja manna starfshóp til að gera tillögur til ríkisstjórnarinnar varðandi nýtingu vindorku, þ.á.m. um lagaumhverfi hennar og hvernig verði tekið á ýmsum álitamálum. Starfshópinn skipa Hilmar Gunnlaugsson, hrl., formaður, en auk hans eru Björt Ólafsdóttir, fyrrv. ráðherra umhverfis- og auðlindamála og Kolbeinn Óttarsson Proppé, fyrrv. alþingismaður…Lesa meira

true

Þrettán ára heldur myndlistarsýningu á Akranesi

Dagbjört Birna Magnúsardóttir á Akranesi opnaði á föstudaginn myndlistarsýningu í Gamla Iðnskólanum við Skólabraut á Akranesi. Þetta var fyrsta sýning hennar, en Dagbjört Birna er þrettán ára og fermist á næsta ári. Á sýningunni eru 23 akríl- og vatnslitamyndir. Sýningin er ekki sölusýning. Aðspurð segist Dagbjört Birna hafa málað frá því hún var smástelpa. Hún…Lesa meira

true

Á fullri ferð á Ferguson til stuðnings Barnaheill

Síðastliðinn miðvikudag hófu þeir Grétar Gústavsson og Karl Friðriksson för sína um Vestirði á dráttarvélum. Með akstrinum ætla þeir að láta gott af sér leiða og safna styrkjum fyrir Vináttu, forvarnaverkefni Barnaheilla gegn einelti. Skorað hafði verið á þá félaga að klára hringferðina, en sumarið 2015 fóru þeir hringinn í kringum landið að undanskildum Vestfjörðum.…Lesa meira

true

Bowie hátíð á Akranesi um helgina

Um helgina verður blásið til fimm ára afmælis Bowie veggjarins við Kirkjubraut á Akranesi með tónleikum og listsýningum en David Bowie hefði orðið 75 ára á þessu ári. Björn Lúðvíksson, eða Bjössi Lú eins og hann er jafnan kallaður, er einn þeirra sem hratt af stað þeirri framkvæmd að mála þennan heiðursvegg. Hann málaði hann…Lesa meira