Ferðin hófst við Staðarskála á miðvikudaginn. Ljósm. af vef bb.is

Á fullri ferð á Ferguson til stuðnings Barnaheill

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Síðastliðinn miðvikudag hófu þeir Grétar Gústavsson og Karl Friðriksson för sína um Vestirði á dráttarvélum. Með akstrinum ætla þeir að láta gott af sér leiða og safna styrkjum fyrir Vináttu, forvarnaverkefni Barnaheilla gegn einelti. Skorað hafði verið á þá félaga að klára hringferðina, en sumarið 2015 fóru þeir hringinn í kringum landið að undanskildum Vestfjörðum. Eftir hringferðina gáfu þeir út bókina Vinir Ferguson, hringferð um landið gegn einelti og rann salan á bókinni óskipt til styrktar Vináttu.\r\n\r\nGrétar og Karl hafa verið vinir í um sextíu ár og kynntust í sveit, á bænum Valdarási í Fitjadal. Þegar Massey Ferguson 35X vélin kom í sveitina var eins og Rolls Royce væri kominn á hlaðið á bænum. Þeir áttu sér þann draum í æsku að aka um landið á þessari dráttarvél og var það kveikjan að hringferð þeirra félaga.\r\n\r\nLíkt og í fyrra skiptið er meginmarkmið Grétars og Karls með ferð sinni að styrkja Vináttu, forvarnaverkefni Barnaheilla, sem beinist að því að fyrirbyggja einelti gegn börnum á leik- og grunnskólaaldri. Unnið er með Vináttu í leik- og grunnskólum auk frístundaheimila um land allt, en verkefnið hefur verið innleitt í yfir 65% allra leikskóla á landinu og um 30% grunnskóla. Blær, fjólublár bangsi, er helsta táknmynd Vináttu og ferðast bangsinn með félögunum.\r\n\r\nEins og fyrr segir lögðu þeir félagarnir í hann frá Staðarskála miðvikudaginn 13. júlí og verða átta daga á leiðinni. Ef allt gengur að óskum munu þeir koma á endastöð á Hvanneyri miðvikudaginn 20. júlí, en síðasti leggurinn er áætlaður frá Reykhólum.\r\n\r\nÁ vefsíðunni: <a href=\"https://www.barnaheill.is/vinirferguson\">https://www.barnaheill.is/vinirferguson</a>  er hægt að styrkja verkefnið eða með því að senda SMS skilaboðin ,,Barnaheill“ í síma 1900, og gefa 1.900 kr til styrktar baráttunni gegn einelti.",
  "innerBlocks": []
}
Á fullri ferð á Ferguson til stuðnings Barnaheill - Skessuhorn