
Göngufólk á Brekkukambi við norðanverðan Hvalfjörð.
Mótmæla fyrirhuguðum vindmyllugarði á Brekkukambi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Stór hópur íbúa og sumarhúsaeigenda í Hvalfjarðarveit hefur ritað nafn sitt á undirskriftalista þar sem skorað er á sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar og Skipulagsstofnun að hafna því að veita leyfi til að setja upp vindmyllugarða á toppi Brekkukambs í Hvalfirði. Arnfinnur Jónasson er í hópi þeirra sem standa að undirskriftasöfnuninni. Hann skrifar á FB síðu sína að safnað sé undirskriftum gegn því að Zephyr Iceland, sem er í eigu norska fyrirtækisins Zephyr, reisi 8-12 vindmyllur á toppi Brekkukambs. „Þær gætu orðið allt að 250 metrar á hæð og sæjust um nánast alla Hvalfjarðarsveit, í Kjós og uppsveitum Borgarfjarðar. Þá sæjust þær vel frá hæsta fossi landsins Glym í Botnsdal og úr þjóðgarðinum á Þingvöllum,“ skrifar Arnfinnur. Hann nefnir að vindmylluspaðarnir séu framleiddir úr trefjagleri og úr þeim geti dreifst ógrynni af örplasti og trefjum út í umhverfið. Þessi mengun safnast upp í náttúrunni og spillir vatnsbólum fyrir nærliggjandi bæi og sumarhúsabyggðir. Þá dreifast þessar agnir um afréttir sauðfjár og safnast upp í þeim.\r\n\r\nMeð undirskrift er fólk hvatt til að taka afstöðu með fólkinu, dýralífinu og náttúrunni gegn vindmyllugarðinum. „Við erum komin með á sjötta hundrað undirskriftir á netinu og síðan höfum við reynt að heimsækja íbúa í Hvalfjarðarsveit og fengið undirskriftir hjá þeim. Þar hafa safnast nærri 150 undirskriftir til viðbótar. Þeir íbúar í Hvalfjarðarsveit sem hafa ekki enn skrifað undir en vilja gera það geta haft samband við Guðbjörgu Elvu Jónasardóttur (s. 898-1877) og mælt sér mót við hana, hún er með undirskriftalista.“\r\n\r\nArnfinnur bendir á að lífsgæði íbúa muni skerðast vegna hljóðmengunar og skuggavarps sem hafa áhrif á heilsu manna, gangi fyrirætlanir Zephyr Iceland eftir. „Frá þeim stafar stöðugur niður og hávaði sem verður mikið áreiti og það er vel þekkt staðreynd að hér í Hvalfirði bergmálar hljóð langar leiðir í kyrru veðri. Nálægð við vindmyllur hefur valdið því erlendis að fasteignaverð lækkar, hvort sem er heimili fólks eða sumarhús og eignir verða mjög erfiðar í endursölu. Ferðaþjónustan er orðin mjög mikilvæg grein í Hvalfjarðarsveit og nábýli við vindmyllugarð mun skaða ferðaþjónustu í sveitarfélaginu en einnig í Kjósinni þar sem er í gangi mikil uppbygging í ferðaþjónustu. Vindmyllurnar munu sjást frá mjög fjölsóttum ferðamannastöðum eins og fossinum Glym, Síldarmannagötum, Leggjabrjóti og Þingvöllum svo dæmi séu tekin. Það mun sannarlega hafa neikvæð áhrif á upplifun ferðamanna á þessum vinsælu stöðum.“\r\n\r\nAð lokum skrifar Arnfinnur: „Stöndum saman og mótmælum þessum fyrirætlunum um að setja upp vindmyllugarð á toppi Brekkukambs, þær eiga alls ekki heima þar.“ Hægt er að senda umsögn til Skipulagsstofnunar fyrir 20. júlí, en undirskriftasöfnunin er á þessari vefslóð: <a href=\"https://www.change.org/p/%C3%A1-m%C3%B3ti-vindmyllugar%C3%B0i-%C3%A1-brekkukambi-%C3%AD-hvalfjar%C3%B0arsveit?recruiter=10150312&recruited_by_id=825bd520-98d2-11e7-a3a7-1b3a0591e22d&utm_source=share_petition&utm_campaign=share_petition&utm_medium=facebook&utm_content=fht-33806981-en-us%3A1\">hér</a>.",
"innerBlocks": []
}