
Sæbjúga í sjó.
Sæbjúgnaveiðar verða nú kvótasettar
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Með lögum sem samþykkt voru á Alþingi 15. júní síðastliðinn er mælt fyrir um að setja skipum aflahlutdeild í sæbjúgum, skipt niður á veiðisvæði miðað við veiðireynslu á fiskveiðiárunum frá 2018 til og með 2021. Í skjali sem Fiskistofa birtir á heimasíðu sinni má sjá að samtals tíu bátar hafa landað sæbjúgum á þessu tímabili. „Fiskistofa beinir því til útgerðaraðila skipa sem eru með veiðireynslu í sæbjúgum á viðmiðunartímabilinu að fara yfir löndunartölur og hlutdeilda útreikningana í skjalinu og senda inn athugasemdir á fiskistofa@fiskistofa.is ef einhverjar eru. Einnig ef útgerðir óska eftir flutningi á veiðireynslu skv. 3. mgr. 9. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.“",
"innerBlocks": []
}