Starfshópi ætlað að móta tillögur um beislun vindorku

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur skipað þriggja manna starfshóp til að gera tillögur til ríkisstjórnarinnar varðandi nýtingu vindorku, þ.á.m. um lagaumhverfi hennar og hvernig verði tekið á ýmsum álitamálum. Starfshópinn skipa Hilmar Gunnlaugsson, hrl., formaður, en auk hans eru Björt Ólafsdóttir, fyrrv. ráðherra umhverfis- og auðlindamála og Kolbeinn Óttarsson Proppé, fyrrv. alþingismaður í hópnum. Starfshópurinn á að skila tillögum sínum til ráðherra fyrir 1. febrúar 2023.\r\n\r\nÍ sáttmála ríkisstjórnarinnar segir að setja skuli sérstök lög um nýtingu vindorku með það að markmiði að einfalda uppbyggingu vindorkuvera til framleiðslu á grænni orku. Áhersla verði lögð á að vindorkuver byggist upp á afmörkuðum svæðum nærri tengivirkjum og flutningslínum, svo unnt verði að tryggja afhendingaröryggi og lágmarka umhverfisáhrif. Tekið er fram að mikilvægt sé að breið sátt ríki um uppbyggingu vindorkuvera og tillit sé tekið til sjónrænna áhrifa, dýralífs og náttúru; einnig að taka verði afstöðu til gjaldtöku fyrir slíka nýtingu.\r\n\r\nHlutverk starfshópsins verður að skoða og gera tillögur til ráðuneytisins um hvernig ofangreindum markmiðum verði náð. Gert er ráð fyrir að starfshópurinn fari ítarlega yfir lög nr. 48/2011, um verndar- og orkunýtingaráætlun, að því er varðar meðhöndlun og málsmeðferð vindorku yfir 10 MW innan rammaáætlunar; auk lagafrumvarps og þingsályktunartillögu sem lögð voru fram 2021 um staðsetning vindorkuvera í landslagi og náttúru Íslands.\r\n\r\nÞegar er hafin vinna við lögfræðilega úttekt á samanburði á lagaumhverfi vegna vindorkuvera í nokkrum löndum. Þar er einkum um að ræða Noreg, Danmörk, Skotland og Nýja Sjáland, þar sem aðstæður eru með líkum hætti og hérlendis við hagnýtingu vindorku, auk þess sem greindir verða helstu þættir í regluverki fleiri ríkja. Hinn nýskipaði starfshópur mun fá niðurstöður þessarar úttektar til afnota, þegar þær liggja fyrir og getur nýtt þær við vinnslu á tillögum sínum. Að loknu mati og greiningu á viðfangsefninu er starfshópnum ætlað að vinna drög að lagafrumvarpi á grundvelli niðurstaða sinna.",
  "innerBlocks": []
}
Starfshópi ætlað að móta tillögur um beislun vindorku - Skessuhorn