
Listakonan Dagbjört Birna Magnúsardóttir og móðir hennar Eva Hauksdóttir taka á móti gestum í Gamla iðnskólanum. Ljósm. mm.
Þrettán ára heldur myndlistarsýningu á Akranesi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Dagbjört Birna Magnúsardóttir á Akranesi opnaði á föstudaginn myndlistarsýningu í Gamla Iðnskólanum við Skólabraut á Akranesi. Þetta var fyrsta sýning hennar, en Dagbjört Birna er þrettán ára og fermist á næsta ári. Á sýningunni eru 23 akríl- og vatnslitamyndir. Sýningin er ekki sölusýning.\r\n\r\nAðspurð segist Dagbjört Birna hafa málað frá því hún var smástelpa. Hún hefur aðstöðu í kjallaranum heima hjá sér og nýtur þess að æfa sig og skapa fjölbreytt verk. Hún segist tvisvar sinnum hafa farið á námskeið í málun, hjá listamönnunum Baska og Ernu Hafnes.\r\n\r\nSýning Dagbjartar Birnu er opin í dag til klukkan 17 og á morgun mánudag er síðasti sýningardagur, opið frá klukkan 14 til 17.",
"innerBlocks": []
}