
Eftir krefjandi vetur í vatnsbúskap vatnsaflsvirkjana Landsvirkjunar hefur staðan nú batnað umtalsvert. Skortur á orku síðla vetrar varð meðal annars til þess að knýja þurfti loðnubræðslu með brennslu olíu. Í frétt Landsvirkjunar kemur fram að snjósöfnun vetrar hafi verið vel yfir meðallagi og tók snjóbráð vorsins snemma við sér og skilaði sér vel í miðlunarlónin.…Lesa meira








