
Fé rekið til Skarðsréttar. Ljósm. úr safni.
Vilja flýta leitum og réttum
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Nokkrar fjallskilanefndir í Borgarbyggð hafa óskað eftir heimild til að flýta göngum og réttum í haust um eina viku og víkja þannig frá gildandi fjallskilareglugerð. Þetta er gert m.a. þar sem gróður var snemma á ferðinni í vor og sölnar því fyrr þegar líður á sumar. Þá greiða afurðastöðvar að jafnaði hæsta verðið fyrir dilkakjöt fyrst á haustin. Fjallskilanefndirnar þurfa að óska eftir staðfestingu sveitarstjórnar og að hún leggi tillöguna fyrir stjórn fjallskilaumdæmis Akraneskaupstaðar, Borgarbyggðar, Hvalfjarðarsveitar og Skorradalshrepps til ákvörðunar.\r\n\r\nFjallskilanefnd Þverárréttar samþykkti á fundi sínum um miðjan júní sl. að taka til athugunar að fara yfir þá fjallskilasamþykkt sem er í gildi núna. Í bókun nefndarinnar segir að leitir færist mikið til milli ára og eru á tímabili mjög seint. „Spurning að finna annan tíma til að miða við leitartímann en 12. og 13. til 18. og 19. september. Einnig fleiri atriði sem mætti athuga,“ segir í bókun nefndarinnar.\r\n\r\nAuk Þverárréttar hafa samkvæmt upplýsingasíðu Borgarbyggðar a.m.k. fjallskilanefndir Brekku- og Svignaskarðsréttar, Hítardalsréttar og Oddsstaðaréttar óskað eftir flýtingu leita um eina viku í haust.",
"innerBlocks": []
}