
Gönguhópurinn fyrir framan Norðtungukirkju. Ljósm. sþ
Pílagrímar ganga í Borgarfirði
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Þær Anna Eiríksdóttir, sóknarprestur Stafholtsprestakalls, og Elínborg Sturludóttir, dómkirkjuprestur og fyrrverandi sóknarprestur í Stafholti, standa í sumar fyrir Pílagrímagöngu milli kirknanna í sókninni. Mánudaginn 6. júní var gengið frá Hvammskirkju í Norðurárdal, yfir Grjótháls og að Norðtungukirkju en leiðin er um ellefu km. Í gær, miðvikudaginn 13. júlí hélt hópurinn svo frá Norðtungukirkju, gekk með bökkum Þverár og að Hjarðarholtskirkju þar sem Þorvaldur Tómas Jónsson bóndi í Hjarðarholti leiddi hópinn með ánni en leiðin er tíu km. Áætlað er að ganga frá Hjarðarholtskirkju og að Stafholtskirkju sunnudaginn 21. ágúst næstkomandi og ljúka þar með pílagrímagöngunni sem endar á helgistund í Stafholtskirkju.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_54896\" align=\"alignnone\" width=\"537\"]<img class=\"wp-image-54896 size-full\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/07/Pilagrimar-ganga-i-Borgarfirdi-_1.jpg\" alt=\"\" width=\"537\" height=\"403\" /> Gönguhópurinn fyrir framan Hjarðarholtskirkju 13. júlí.[/caption]",
"innerBlocks": []
}