
Grunnskólinn í Borgarnesi. Ljósm. mm
Gert að birta minnisblað um framkvæmdir við skóla
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Úrskurðarnefnd um upplýsingamál kvað 12. júlí síðastliðinn upp úrskurð í máli sem varðar upplýsingagjöf sveitarfélagsins Borgarbyggðar sem synjað hafði Guðsteini Einarssyni íbúa í Borgarnesi um aðgang að skýrslu eftirlitsmanns með framkvæmdum við stækkun Grunnskólans í Borgarnesi. Á framkvæmdatímanum komu upp ýmis vandamál sem leiddu til að verkið í heild varð mun dýrara en áætlað hafði verið. Synjun Borgarbyggðar á birtingu upplýsinga úr minnisblaðinu var á því byggð að skýrslan væri undanþegin aðgangi almennings á grundvelli upplýsingalaga og stuðst við grein sem efnislega segir að bréfaskipti við sérfróða aðila í tengslum við réttarágreining eða til afnota í dómsmáli eða við athugun á því hvort slíkt mál skuli höfðað, séu undanþegin upplýsingarétti. Í kæru Guðsteins til úrskurðarnefndarinnar kom fram að framkvæmdir við Grunnskólann í Borgarnesi hafi farið langt fram úr kostnaðaráætlun og að almenningur ætti rétt á að fá að vita um hvað málið snerist.\r\n\r\nNiðurstaða Úrskurðarnefndar um upplýsingamál var afdráttarlaus, eða sú að ákvörðun Borgarbyggðar, dags. 1. desember 2021, var felld úr gildi. Borgarbyggð var því skylt að veita Guðsteini aðgang að minnisblaði byggingastjóra vegna framkvæmda við Grunnskólann í Borgarnesi. Þetta er í annað skipti sem Guðsteinn Einarsson vísar erindi til úrskurðarnefndarinnar og fær dæmt sér í vil. Fyrir ári síðan kvað nefndin upp sambærilegan úrskurð þess efnis að skýrsla sem KPMG vann fyrir Borgarbyggð um rekstur sveitarfélagsins skyldi gerð opinber. Í henni voru upplýsingar um ráðstöfun opinbers fjár og hagsmuna sem úrskurðarnefndin taldi að almenningur hafi almennt ríka hagsmuni af því að kynna sér.\r\n\r\n<strong>233 milljónum hærri reikningar</strong>\r\n\r\nMinnisblaðið sem kæra Guðsteins snerist um er ritað 16. júní 2021 af Benedikt Magnússyni byggingatæknifræðingi hjá Víðsjá verkfræðistofu en hann sinnti eftirliti við framkvæmdum við Grunnskólann í Borgarnesi frá því í byrjun árs 2018. Á þeim tíma móttók hann og yfirfór reikninga vegna framkvæmda við skólann. „Snemma í því ferli var rætt á fundi byggingarnefndar (júlí 2018) að allir reikningar sem að bókast ættu á verkið þyrftu að hafa undirritun eftirlitsmanns áður en þeir væru greiddir. Í þeirri trú að eftir þessu væri farið hefur eftirlit reglulega kynnt stöðu verksins fyrir byggingarnefnd og einnig fyrir byggðarráði. Á vordögum 2021 kom síðan í ljós að staða verksins í bókum eftirlits var umtalsvert lægri heldur en í bókum Borgarbyggðar,“ segir í minnisblaði Benedikts. Þar segir einnig að samkvæmt bókhaldi Borgarbyggðar hafi heildarkostnaður við verkið á þessum tímapunkti verið umtalsvert hærri en bókhald eftirlitsmannsins sagði til um, sem nam 233 milljónum króna. Verkið í heild var þá komið í 1.522.990.910 krónur með virðisaukaskatti.\r\n\r\nÍ minnisblaðinu segir Benedikt: „Við yfirferð bókhalds kemur í ljós að allnokkuð af reikningum hafa verið bókaðir á verkið án þess að eftirlit hafi haft vitneskju um, eða samþykkt þá reikninga. Einnig eru verkliðir sem tengjast lóðarframkvæmd bókaðir á sama stað sem og reikningar sem tengjast verkinu ekki.“\r\n\r\n<strong><em>Umrætt minnisblað má sjá hér að neðan í heild sinni:</em></strong>\r\n\r\n<a class=\"link-to-pdf\" title=\"Minnisblað Benedikt Magnússon\" href=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/07/Minnisblad-Benedikt-Magnusson.pdf\" target=\"_blank\" rel=\"attachment noopener wp-att-54906\"><img class=\"alignnone size-medium wp-image-54907\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/07/Minnisblad-Benedikt-Magnusson-pdf-600x777.jpg\" alt=\"thumbnail of Minnisblað Benedikt Magnússon\" width=\"232\" height=\"300\" /></a>",
"innerBlocks": []
}