Jarðgangagjaldi ætlað að fjármagna stærri samgönguverkefni

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Fyrirhugað er að hefja gjaldtöku í öllum jarðgöngum hér á landi á næsta eða þarnæsta ári. Greint var frá þessu í kvöldfréttum Stöðvar 2 í vikunni, en Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur boðað frumvarp um málið í haust. Gjaldtakan á að standa undir framtíðar jarðgangagerð í landinu. Í því sambandi bendir ráðherrann á að Fjarðarheiðargöng eru nú fyrirhuguð á næstu árum og munu þau koma til með að verða lengstu jarðgöng og þau langdýrustu á Íslandi. Á gjaldtakan að standa undir þeirri framkvæmd sem áætluð er að kosti 47 milljarða. Því segir ráðherrann að 17,7 milljarða króna framlag samgönguáætlunar dugi hvergi nærri til. Sigurður Ingi segir framkvæmdir sem þessar dýrar en ávinninginn mikinn.\r\n\r\nSigurður Ingi vonast til þess að hægt verði að gera fleiri en ein göng í einu með gjaldtöku í göngum og breytingu á gjöldum tengdum samgöngum. Annarskonar gjaldtaka verður tekin upp en t.d. á að hætta með bensín- og dísel gjöld og í stað þeirra hefja notkunargjöld í einhverju formi. Sigurður Ingi sagði í fréttum Stöðvar 2 að ráðuneytið þurfi þetta ár og fram á það næsta til undirbúnings svo áætlað er að gjaldtaka hefjist seinni part ársins 2023 eða árið 2024. Með þessum aðgerðum er horft til aðferðar Færeyinga við fjármögnun samgöngumannvirkja þar í landi, en þeir hafa stuðst við svipað fyrirkomulag undanfarin ár.",
  "innerBlocks": []
}
Jarðgangagjaldi ætlað að fjármagna stærri samgönguverkefni - Skessuhorn