{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Tómas Freyr Kristjánsson fréttaritari Skessuhorns er nú staddur í Manchester á Englandi í hópi fjölmargra Íslendinga á leið á völlinn. Núna klukkan 16 eigast við landslið Íslands og Ítalíu í annarri umferð D riðils EM í knattspyrnu kvenna. Í fyrsta leik gerðu íslensku stelpurnar jafntefli við Belga en Ítalía steinlá fyrir Frakklandi; 1-5. Fyrirfram er því búist við hörkuleik.\r\n\r\nMeðfylgjandi myndir lýsa stemningunni nú fyrir leikinn. Þar eru meðal annarra fremst í flokki Vanda Sigurgeirsdóttir formaður KSÍ, Guðni Th Jóhannesson forseti og Lilja D Alfreðsdóttir ráðherra íþróttamála.\r\n\r\n<img class=\"alignnone size-medium wp-image-54913\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/07/Stemning-fyrir-leik_2-600x450.jpg\" alt=\"\" /> <img class=\"alignnone size-medium wp-image-54914\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/07/Stemning-fyrir-leik_3-600x450.jpg\" alt=\"\" />",
"innerBlocks": []
}
Stemning fyrir leik Íslands og Ítalíu - Skessuhorn