Hleðslustöðvar á leið fólks um landið

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Til að auðvelda ferðamönnum að skipuleggja ferðalög um Ísland á rafbílum fór Ferðamálastofa í það verkefni fyrr á þessu ári að að kortleggja staðsetningu hleðslustöðva fyrir rafbíla, með það fyrir augum að miðla þeim til innlendra og erlendra ferðamanna. Fyrsta afrakstur verkefnisins má nú sjá á ferðavefjunum visiticeland.com og ferdalag.is\r\n\r\nVerkefnið var unnið í samstarfi við Orkustofnun, Íslenska nýorku og Íslandsstofu. Stærsti grunnur að verkefninu var fenginn hjá Orkustofnun, sem átti fyrir upplýsingar um staðsetningu hleðslustöðva um allt land. Ferðamálastofa bætti síðan í safnið með því að óska eftir upplýsingum frá einstökum ferðaþjónustuaðilum um hleðslustöðvar á þeirra vegum.\r\n\r\n<strong>Hleðslustöðvar og afþreying í grennd</strong>\r\n\r\nInn á ferðavefnum visiticeland.com getur ferðafólk nú nálgast upplýsingar um hleslustöðvar á korti, slegið inn upplýsingar um upphafs og ákvörðunarstað og séð hvaða hleðslustöðvar eru aðgengilegar á leiðinni. Þegar hleðslustöð er valin koma fram upplýsingar um hvers konar hleðslu er um að ræða og einnig þá gisti- og afþreyingarmöguleika sem eru í nágrenninu.\r\n\r\n<strong>Hvaða staðir bjóða hleðslu?</strong>\r\n\r\nInn á ferðavefnum ferdalag.is var farin þá leið að kallaðar hafa verið fram upplýsingar um t.d. gistingu og afþreyingu er hægt að birta sérstaklega þá staði sem bjóða upp á hleðslu.\r\n\r\n„Um er að ræða fyrsta áfanga verkefnisins en það verður þróað áfram á næstu mánuðum með það fyrir augum að auka notagildi þess fyrir ferðafólk og ferðaþjónustuaðila,“ segir í tilkynningu frá Ferðamálastofu.\r\n\r\n<a href=\"https://www.visiticeland.com/charging-station-map/\">Sjá nánar hér.</a>",
  "innerBlocks": []
}
Hleðslustöðvar á leið fólks um landið - Skessuhorn