{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Eftir krefjandi vetur í vatnsbúskap vatnsaflsvirkjana Landsvirkjunar hefur staðan nú batnað umtalsvert. Skortur á orku síðla vetrar varð meðal annars til þess að knýja þurfti loðnubræðslu með brennslu olíu. Í frétt Landsvirkjunar kemur fram að snjósöfnun vetrar hafi verið vel yfir meðallagi og tók snjóbráð vorsins snemma við sér og skilaði sér vel í miðlunarlónin. „Blöndulón og Þórisvatn náðu lægstu stöðu seinni hluta mars og hófst söfnun fljótlega í kjölfarið og hefur haldist stöðug síðan. Hálslón náði lægstu stöðu um miðjan maí og hefur söfnun verið rólegri þar en í öðrum miðlunum Landsvirkjunar enda spilar jökulbráð þar stærri þátt í innrennsli ársins. Í síðari hluta júnímánaðar hefur hægst á söfnun þar til að jökulbráð tekur við sér með hækkandi hitastigi á hálendinu. Góðar líkur eru á að Blöndulón og Hálslón fyllist í ágúst en rétt undir helmingslíkur á að Þórisvatn fari á yfirfall fyrir sumarlok.“",
"innerBlocks": []
}