Hreggviður að klippa á borðann. Ljósm. vaks

Vígsla á rampi númer sjötíu á Akranesi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Starfsmenn verkefnisins Römpum upp Ísland hafa verið á Akranesi síðustu tvo daga og sett upp fimm rampa en búið er að finna um það bil 20 römpum stað á Akranesi og líklegt að fleiri bætist við í kjölfarið. Rampar eru komnir upp við verslunina Model, Rauða krossinn, Hákot og tveir við Gamla Kaupfélagið. Markmiðið með römpunum er að bæta aðhengi hreyfihamlaðra að þjónustu, verslun og veitingahúsum á miðsvæði Akraness og við þá staði sem mest eru sóttir.\r\n\r\nÍ dag var vígsla á sjötugasta rampinum við veitingastaðinn Gamla Kaupfélagið og hélt bæjarstjórinn Sævar Freyr Þráinsson stutta tölu um verkefnið. Þar minntist hann á framlag frumkvöðulsins Haraldar Þorleifssonar sem væri alveg einstakt. Þá hefði íslenska ríkið og sveitarfélögin á hverjum stað komið myndarlega að því að tryggja að þetta verkefni gæti orðið að veruleika ásamt þeim fjölda fyrirtækja sem hefðu stutt við þetta verkefni.\r\n\r\nÞað var Hreggviður Steinn Hendriksson sem fékk þann heiður að klippa á borðann og þar með vígja ramp númer sjötíu en Römpum upp Ísland stefnir að því að lokið verði við uppsetningu þúsund nýrra rampa um allt Ísland innan fjögurra ára.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"54917,54918\"]",
  "innerBlocks": []
}
Vígsla á rampi númer sjötíu á Akranesi - Skessuhorn