Fréttir

true

Tveir Maríulaxar veiddust í hollinu

“Við vorum í tveggja daga hjónaholli í Straumfjarðará. Hollið endaði með sex fiska á land, frábær ferð í alla staði,“ sagði Birna Dögg Jónsdóttir í samtali við Skessuhorn. „Af þessum sex löxum vor tveir Maríulaxar, sem var frábært. Veðrið var ekki að vinna með okkur en við létum það ekki á okkur fá. Að kasta…Lesa meira

true

Ólafsdalshátíð verður haldin 16. júlí

Þrettánda Ólafsdalshátíðin í Gilsfirði verður haldin laugardaginn 16. júlí, glæsileg fjölskylduhátíð að vanda. Megindagskráin verður frá kl. 13 til 17. Meðal skemmtikrafta verða Lalli töframaður, Bjartmar Guðlaugsson og fleiri. Áhugaverð gönguferð með leiðsögn verður farin áður en formleg dagskrá hefst (um kl. 11). Ólafsdalshappdrættið verður á sínum stað, góðar veitingar, Erpsstaðaís, handverksmarkaður, hestar fyrir börnin…Lesa meira

true

QR kóði fyrir Umhverfingu og upplýsingar í Árbliki

Búið er að gefa út QR kóða þar sem finna má leiðarvísi fyrir væntanlega stórsýningu um Dali og Vestfirði, en listsýningin nefnist Nr4 Umhverfing. Skessuhorn hefur fjallað um sýninguna fyrr í sumar, en hún verður opnuð 2. júlí næstkomandi. „Þó að leiðarvísirinn sé ekki fullkominn ennþá, þá er þegar hægt að sjá einhvern hluta hennar…Lesa meira

true

Arkþing sigurvegari í hönnunarsamkeppni um Breið á Akranesi

Í dag var við hátíðlega athöfn í Hafbjargarhúsinu á Breið á Akranesi kynnt niðurstaða í veglegri hönnunarsamkeppni á um ellefu hektara svæði á Breiðinni. Það er Breið þróunarfélag sem hélt utan um samkeppnina í samvinnu við Brim hf og Akraneskaupstað. Dómnefnd hefur nú metið þær 24 tillögur sem sendar voru inn til keppni, en á…Lesa meira

true

MB styrkt til þróunar námsefnis fyrir STEAM

Menntaskóli Borgarfjarðar hlaut á dögunum veglegan styrk til þróunar námsgagna fyrir verkefnið sem í daglegu tali er kallað STEAM. Stóru málin í heiminum, eins og fjórða iðnbyltingin, umhverfismálin og heimsmarkmið SÞ um sjálfbæra þróun ásamt lýðfræðilegum áskorunum, kalla á aukna nýsköpun á öllum sviðum mannlífs og samfélags. Stefna íslenskra stjórnvalda í menntamálum og nýsköpun til…Lesa meira

true

Bláfáninn blaktir að nýju við hún á Langasandi

Í morgun var Bláfáninn dreginn að húni við Langasand á Akranesi, tíunda árið í röð. Bláfáninn er alþjóðlegt umhverfismerki sem veitt er smábátahöfnum, baðströndum og þjónustuaðilum í sjávarferðamennsku fyrir árangursríkt starf að umhverfismálum. Tilgangur verkefnisins er að stuðla að verndun á lífríki haf- og strandsvæða, draga úr umhverfisáhrifum, bæta öryggi og efla umhverfisvitund. Bláfáninn er…Lesa meira

true

Veiðin byrjuð á Arnarvatnsheiði

Opnað var fyrir veiði á sunnanverðri Arnarvatnsheiði um miðjan júní. „Það er alltaf gaman að fara á Arnarvatnsheiðina, enda farið þarna æði oft og þetta er skemmtilegt,“ sagði Ingólfur Kolbeinsson þegar tíðindamaður Skessuhorns heyrði í honum, nýkominn á heiðina og strax kominn með fína veiði og væna fiska. „Já, það var góð veiði; bleikja og…Lesa meira

true

Heimafólk lýsir þungum áhyggjum yfir ástandi Baldurs

„Sameiginlegt sveitarfélag Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar lýsir yfir þungum áhyggjum yfir þeirri grafalvarlegu stöðu sem hefur verið uppi varðandi öryggismál Breiðafjarðarferjunnar Baldurs, en Stykkishólmsbær hafði ítrekað bent á að bregðast þurfi við þar sem núverandi ferja uppfylli ekki viðeigandi öryggiskröfur.“ Þannig hljóðar ályktun bæjarstjórnar frá 23. Júní síðastliðinn sem samþykkt var samhljóða. Sveitarfélagið minnir á að…Lesa meira

true

Grundfirðingar taka höndum saman fyrir Birnu

Eins og margir Grundfirðingur vita er Birna Kristmundsdóttir að berjast við leghálskrabbamein í þriðja sinn á skömmum tíma. Hefur hún undanfarna mánuði verið í strangri lyfjameðferð sem auðvitað tekur sinn toll. Nokkrir Grundfirðingar tóku sig til og héldu styrktartónleika síðastliðinn þriðjudag fyrir Birnu og fjölskyldu. Á tónleikunum sem fóru fram í Grundarfjarðarkirkju sungu nokkrar sem…Lesa meira

true

Líf og fjör á Landsmóti í Borgarnesi

Það hefur verið líf og fjör í Borgarnesi um helgina á Landsmóti 50+ sem UMFÍ stendur fyrir. Keppendur eru á þriðja hundraðið, áhugasamt fólk sem reynir við sig í fjölda greina. Í dag er síðasti dagur mótsins og lýkur því sem fyrr með keppni í stígvélakasti. Í gær var keppt í pútti, bridge, sundi og frjálsum.…Lesa meira