: Í Ólafsdal eru nú risin fimm hús þar sem skólahúsið stóð eitt áður. Ljósm. Torfi Ólafur Sverrisson.

Ólafsdalshátíð verður haldin 16. júlí

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Þrettánda Ólafsdalshátíðin í Gilsfirði verður haldin laugardaginn 16. júlí, glæsileg fjölskylduhátíð að vanda. Megindagskráin verður frá kl. 13 til 17. Meðal skemmtikrafta verða Lalli töframaður, Bjartmar Guðlaugsson og fleiri. Áhugaverð gönguferð með leiðsögn verður farin áður en formleg dagskrá hefst (um kl. 11). Ólafsdalshappdrættið verður á sínum stað, góðar veitingar, Erpsstaðaís, handverksmarkaður, hestar fyrir börnin o.fl. Gestum gefst auk þess kostur á að kynna sér glæsilega uppbyggingu í húsa í Ólafsdal á vegum Minjaverdar. Þar eru nú risin fimm hús þar sem skólahúsið stóð eitt áður. Endanleg dagskrá verður nánar kynnt fljótlega.\r\n\r\nSumaropnun Ólafsdalsfélagsins í Ólafsdal verður frá 10. júlí til 1. ágúst kl. 12-17. Boðið er upp á sýningar um Ólafsdalsskólann (1880-1907), kaffiveitingar og leiðsögn. Þá er vinsælt að ganga að landnámsskálanum og fornminjasavæðinu innar í dalnum þar sem Forleifastofnun Íslands mun stunda rannsóknir fimmta sumarið í röð (um 15 mín ganga frá skólahúsinu). Allan opnunartímann verða listaverk bræðranna Halldórs og Sverris Ásgeirssona til sýnis. Verk Halldórs verður utandyra (vísun í áform um vindmyllugarða á Íslandi) en myndverk Sverris í Suðurstofu skólahússins. Þau verk eru liður í myndlistarverkefninu, \"Nr. 4 Umhverfing\", sem fjöldi listamanna taka þátt í með sýningum í Dölum, á Ströndum og  Vestfjörðum í sumar.  Þeir bræður eru afkomendur Torfa og Guðlaugar í Ólafsdal.\r\n\r\nStaðarhaldarar í Ólafsdal í sumar verða m.a. Rögnvaldur Guðmundsson formaður Ólafsadalsfélagsins og kona hans Helga Björg Stefánsdóttir. Einnig Torfi Ólafur Sverrisson og fjölskylda.\r\n\r\n<em>-fréttatilkynning</em>",
  "innerBlocks": []
}
Ólafsdalshátíð verður haldin 16. júlí - Skessuhorn