
Baldur dreginn að bryggju eftir síðustu bilun sem varð í ferjunni 18. júní síðastliðinn. Ljósm. sá.
Heimafólk lýsir þungum áhyggjum yfir ástandi Baldurs
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "„Sameiginlegt sveitarfélag Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar lýsir yfir þungum áhyggjum yfir þeirri grafalvarlegu stöðu sem hefur verið uppi varðandi öryggismál Breiðafjarðarferjunnar Baldurs, en Stykkishólmsbær hafði ítrekað bent á að bregðast þurfi við þar sem núverandi ferja uppfylli ekki viðeigandi öryggiskröfur.“ Þannig hljóðar ályktun bæjarstjórnar frá 23. Júní síðastliðinn sem samþykkt var samhljóða.\r\n\r\nSveitarfélagið minnir á að 15 mánuðir eru síðan að litlu mátti muna að illa færi þegar núverandi ferja varð vélarvana á miðjum firðinum 11. mars 2021 þar sem tók rúman sólarhring að draga ferjuna í land í Stykkishólmi við slæm skilyrði. Í millitíðinni hefur Breiðafjarðarferjan Baldur tvisvar til viðbótar bilað og/eða orðið vélarvana á Breiðafirði, nú síðast 18. júní sl. Mikil mildi þykir að ekki skildi fara verr í öll þau skipti sem þessar tíðu bilanir hafa átt sér stað.\r\n\r\n„Stykkishólmur og Helgafellssveit áréttar að núverandi ferja hefur einungis eina vél, en við Breiðafjörð hafa allar ferjurnar sem hafa þjónustað svæðið frá 1955 haft tvær vélar utan núverandi ferju. Það liggur í augum uppi að ítrekaðar bilanir á því sérstaka svæði sem Breiðafjörðurinn er með skerjum, boðum og eyjum ásamt sterkum straumum og úthafsöldu sýni svo ekki sé um villst að tvær vélar eru nauðsynlegar fyrir ferju á þessari siglingarleið.“\r\n\r\nÞá segir í ályktun bæjarráðs að innviðaráðherra og samgönguyfirvöld beri ábyrgð á að öruggar samgöngur séu um Breiðafjörð. „Langur tími er liðinn frá því að því að núverandi ferja varð vélavana við hættulegar aðstæður og enn er beðið eftir að gerðar verði viðeigandi ráðstafanir. Ákvörðun um nauðsynlegar breytingar á hafnarmannvirkjum í Stykkishólmi, Flatey og Brjánslæk og fjármögnun þeirra hefði t.a.m. þurft að liggja fyrir á vordögum 2021 þannig að framkvæmdir gætu hafist á fyrri hluta þessa árs. Með því hefði verið hægt að tryggja að skip sem uppfyllir nútíma öryggiskröfur og þjónar betur hagsmunum samfélagsins væri farin að sinna ferjusiglingum um Breiðafjörð.“\r\n\r\nBæjarráð leggur þunga áherslu á að engir hagsmunir gleymist þegar verið er að ræða um lausnir í ferjumálum, því allir eiga þeir að vega jafn mikið, hvort sem um er að ræða fiskeldi á Vestfjörðum, ferðaþjónustu, eða íbúa í Flatey. Ferja um Breiðafjörð þarf að geta þjónustað allt samfélagið í kringum fjörðinn og því er málið í eðli sínu afar mikilvægt byggðamál, ekki síst fyrir þær fjölskyldur sem búa í Flatey og þurfa öruggar samgöngur og tryggan flutning á vatni, olíu og öðrum nauðsynjum sem og aðra sem dvelja í eyjunni til skemmri eða lengri tíma.\r\n\r\n„Alþingi og ríkisstjórn, sér í lagi innviðaráðherra, þarf að mati sveitarfélagsins því tafarlaust að sýna fyrirhyggju og festu í þessu máli. Tryggja þarf að Vegagerðin hafi skýra stefnumörkun til þess að vinna eftir og fjármuni til þess bregðast við þannig að tryggja megi öruggar ferjusiglingar um Breiðafjörð næsta haust ef þess er nokkur kostur. Sveitarfélagið leggur áherslu á mikilvægi þess að leita allra leiða við finna hentugt skip sem myndi geta hafið siglingar með minniháttar breytingum á hafnarmannvirkjum, á meðan verið er að undirbúa þær breytingar sem hugsaðar eru á hafnarmannvirkjum til framtíðar.\r\n\r\nStykkishólmur og Helgafellssveit leggur þunga áherslu á að ef önnur ferja getur ekki hafið siglingar næsta vetur þá þarf viðeigandi viðbúnað í Stykkishólmi til þess að tryggja megi betur öryggi sjófarenda, t.d. dráttarbát staðsettan í Stykkishólmi og efla sjóbjörgunargetu. Er slíkur viðbúnaður jafnframt nauðsynlegur svo hægt verði að byggja aftur upp nauðsynlegt traust á siglingum með núverandi ferju.“\r\n\r\nLoks fagnar byggðarráð þeirri skýru framtíðarsýn ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur, sem innviðaráðherra hefur talað fyrir, um að framtíðarlausn í ferjusiglingum um Breiðafjörð sé að ríkið hanni og smíði nýja ferju sem hönnuð verður með tilliti til orkuskipta framtíðarinnar. Sveitarfélagið leggur hins vegar áherslu á mikilvægi þess að hraða þeirri vinnu eins og hægt er og að nægjanlegt fjármagn verði tryggt í samgönguáætlun þannig að hægt verði að hefja ferjusiglingar á Breiðafirði með þeirri ferju eins fljótt og verða má.“",
"innerBlocks": []
}