Á mynd í kirkjunni. F.v. Sylvía Rún Guðnýjardóttir, Ragnheiður Dröfn Benediktsdóttir, Heiðrún Hallgrímsdóttir, Krista Rún Þrastardóttir, Rakel Birgisdóttir, Birna Kristmundsdóttir, Guðbjörg Jóhanna Níelsdóttir og Ólöf Gígja Hallgrímsdóttir.

Grundfirðingar taka höndum saman fyrir Birnu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Eins og margir Grundfirðingur vita er Birna Kristmundsdóttir að berjast við leghálskrabbamein í þriðja sinn á skömmum tíma. Hefur hún undanfarna mánuði verið í strangri lyfjameðferð sem auðvitað tekur sinn toll. Nokkrir Grundfirðingar tóku sig til og héldu styrktartónleika síðastliðinn þriðjudag fyrir Birnu og fjölskyldu. Á tónleikunum sem fóru fram í Grundarfjarðarkirkju sungu nokkrar sem sótt hafa söngnámskeið hjá Sylvíu Rún ásamt Sylvíu sjálfri.\r\n\r\nÞá var sömuleiðis safnað fyrir Birnu með öðrum hætti í vikunni sem leið. Box7 stóð fyrir áheita róðrarkeppni. Fyrir keppnina var stefnt að því að hjóla/róa 1.500 km. á róðrarvélum og bike erg hjólum. Fimm róðrarvélar og fimm hjól voru á staðnum.\r\n\r\nÁ báðum þessum viðburðum; tónleikum og róðrarkeppni, var óskað eftir frjálsum framlögum í söfnun sem hafði sama tilgang.",
  "innerBlocks": []
}
Grundfirðingar taka höndum saman fyrir Birnu - Skessuhorn