{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í morgun var Bláfáninn dreginn að húni við Langasand á Akranesi, tíunda árið í röð. Bláfáninn er alþjóðlegt umhverfismerki sem veitt er smábátahöfnum, baðströndum og þjónustuaðilum í sjávarferðamennsku fyrir árangursríkt starf að umhverfismálum. Tilgangur verkefnisins er að stuðla að verndun á lífríki haf- og strandsvæða, draga úr umhverfisáhrifum, bæta öryggi og efla umhverfisvitund. Bláfáninn er þannig tákn um góða frammistöðu í umhverfismálum og bætir ímynd og ásýnd þar sem hann blaktir við hún.\r\n\r\nNemendur og starfsfólk leikskólanna á Akranesi, sem og starfsfólk vinnuskólans, voru viðstaddir athöfnina í blíðskaparveðri. Fyrst ávarpaði Jón Arnar Sverrisson garðyrkjustjóri gesti, en hann hefur umsjón með að þeim skilyrðum sé fylkt að bláfáninn fáist afhentur. Ragnar Þórðarson frá Vottunarstöðinni Túni sagði frá hvað felst í bláfána viðurkenningunni. Lok ræddi Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri við hópinn og kallaði til liðs við sig nokkur leikskólabörn til að draga fánann að húni. Loks sungu leikskólabörn nokkur lög.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"54509,54510,54511,54512,54513,54514\"]",
"innerBlocks": []
}
Bláfáninn blaktir að nýju við hún á Langasandi - Skessuhorn