
Fallegur urriði veiddur á flugu á Arnarvatnsheiði.
Veiðin byrjuð á Arnarvatnsheiði
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Opnað var fyrir veiði á sunnanverðri Arnarvatnsheiði um miðjan júní. „Það er alltaf gaman að fara á Arnarvatnsheiðina, enda farið þarna æði oft og þetta er skemmtilegt,“ sagði Ingólfur Kolbeinsson þegar tíðindamaður Skessuhorns heyrði í honum, nýkominn á heiðina og strax kominn með fína veiði og væna fiska. „Já, það var góð veiði; bleikja og urriði í bland, strax og hvassviðrið sem gekk yfir á föstudag og framan af laugardegi var gengið yfir, fór hann að gefa sig. Frá miðjum degi á laugardaginn og fram á kvöld veiddist vel á fluguna, til dæmis á Zug bug krók, Bjarnar og moppuna. Einnig var að veiðast á Íslandsspún, Lyppu og Moresilda. Vatnsstaðan er fín í vötnunum og þá er alltaf gaman að veiða, það er að segja þegar veðrið leyfir,“ sagði Ingólfur.\r\n\r\nVið fréttum að fleiri veiðimönnum á heiðinni og fengu þeir sömuleiðis fína veiði, en veðurfarið hefði mátt vera betra. Þá virðist silungurinn vel haldinn eftir veturinn.\r\n\r\nVeiðileyfi eru seld í gegnum heimasíðuna arnarvatnsheidi.is með því að senda inn fyrispurn eða í veitingahúsinu við Hraunfossa. Þar er opið frá kl. 11 til 15 mánudaga til fimmtudaga og kl. 11-17 föstudaga til sunnudaga.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_54502\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-54502 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/06/Veidin-byrjud-a-Arnarvatnsheidi_2-600x958.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"958\" /> Ingólfur Kolbeinsson með fína veiði.[/caption]",
"innerBlocks": []
}