Flemming var sérgreinastjóri í púttinu sem fram fór á Hamri. Ljósm. umfí.

Líf og fjör á Landsmóti í Borgarnesi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Það hefur verið líf og fjör í Borgarnesi um helgina á Landsmóti 50+ sem UMFÍ stendur fyrir. Keppendur eru á þriðja hundraðið, áhugasamt fólk sem reynir við sig í fjölda greina. Í dag er síðasti dagur mótsins og lýkur því sem fyrr með keppni í stígvélakasti. Í gær var keppt í pútti, bridge, sundi og frjálsum. Í dag verður m.a. keppt í golfi og körfubolta.\r\n\r\n<strong>Bráðabani skar úr um úrslit í pútti</strong>\r\n\r\n„Stemningin er rosalega fín og við erum mjög heppin með veður,‟ segir Flemming Jessen, sérgreinastjóri í pútti, þar sem hann stóð á golfvellinum í Borgarnesi og var að ganga frá eftir keppni dagsins á Landsmóti UMFÍ 50+. Um 50 þátttakendur voru skráðir til leiks í pútti og þurfti bráðabana til að skera úr um þrjú efstu sætin í kvennaflokki. Úrslit í flokki karla voru hins vegar nokkuð skýr. Flemming segir þetta algengt í pútti að bráðabani komi til. Keppt var annars vegar um fyrstu tvö sætin í bráðabana og hins vegar um sæti 3 og 4.\r\n\r\nFlemming hefur nóg að gera á Landsmóti UMFÍ 50+. Hann var sérgreinastjóri í boccía á föstudaginn og aftur í pútti í dag. Hann kom einnig að keppni í ringói á föstudaginn og bridge í gær. Bridge-ið er fjölmenn íþrótt sem stóð yfir allan laugardaginn í Hjálmakletti. Boccía var einnig stór grein á Landsmóti UMFÍ 50+ eins og púttið en þar voru 16 fjögurra manna lið skráð til leiks. Sjö lið kepptu í ringói og fjórtán sveitir í bridge.\r\n\r\nÚrslit úr öllum greinum mótsins verða birt á mótasíðu Landsmóts UMFÍ 50+",
  "innerBlocks": []
}
Líf og fjör á Landsmóti í Borgarnesi - Skessuhorn