QR kóði fyrir Umhverfingu og upplýsingar í Árbliki

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Búið er að gefa út QR kóða þar sem finna má leiðarvísi fyrir væntanlega stórsýningu um Dali og Vestfirði, en listsýningin nefnist Nr4 Umhverfing. Skessuhorn hefur fjallað um sýninguna fyrr í sumar, en hún verður opnuð 2. júlí næstkomandi. „Þó að leiðarvísirinn sé ekki fullkominn ennþá, þá er þegar hægt að sjá einhvern hluta hennar nú þegar og við stefnum auðvitað á að klára allt fyrir 2 júlí,“ segir Þórdís Alda, einn skipuleggjandi sýningarinnar í samtali við Skessuhorn. „Auk þess ætlum við að setja upp stóran dúk með logói Umhverfingar á vegginn á Félagsheimilinu Árbliki í Dölum, en dúkurinn snýr að þjóðveginum. Einnig verða í þessari viku sett upp kynningarspjöld í anddyri Árbliks þar sem fram koma upplýsingar um alla sýnendurnar 126.“",
  "innerBlocks": []
}
QR kóði fyrir Umhverfingu og upplýsingar í Árbliki - Skessuhorn