Fréttir

true

Steypt af krafti í stærsta fjölbýlishúsinu á Akranesi

Í dag er unnið af krafti við að steypa gólfplötu og þak bílakjallara í nýbyggingu við Asparskóga 18 á Akranesi. Hver steypubíllinn af öðrum ekur í hlað og verður um 130 rúmmetrum af steypu dælt inn í plötuna sem festir um leið saman forsteyptar einingar sem húsið er byggt úr. Risin er fyrsta hæðin í…Lesa meira

true

Afnám löggildingar valdra iðngreina

Breytingar á reglugerð nr. 940/1999 um löggiltar iðngreinar hafa verið birtar í Samráðsgátt stjórnvalda. Tillögurnar eru afrakstur vinnu sem ráðist var í í kjölfar úrbótatillaga sem settar voru fram í samkeppnismati Efnahags- og framkvæmdanefndarinnar (OECD) síðla árs 2020. OECD hefur gagnrýnt Ísland fyrir að vera heimsmethafi í fjölda iðngreina sem krefjast löggildingar. Margar þessara greina…Lesa meira

true

Frábær síðari hálfleikur hjá Skagamönnum dugði ekki til

Skagamenn eru úr leik í Mjólkurbikarkeppni karla eftir að hafa tapað naumlega gegn Breiðabliki 2:3, í 16 liða úrslitunum á Akranesvelli í gærkvöldi, þar sem Blikar skoruðu sigurmarkið á lokamínútu venjulegs leiktíma. Það var jafnræði með liðunum í byrjun leiks en hægt og rólega náði lið Blika tökum á leiknum enda um að ræða langbesta…Lesa meira

true

Tveir Maríulaxar veiddust í hollinu

“Við vorum í tveggja daga hjónaholli í Straumfjarðará. Hollið endaði með sex fiska á land, frábær ferð í alla staði,“ sagði Birna Dögg Jónsdóttir í samtali við Skessuhorn. „Af þessum sex löxum vor tveir Maríulaxar, sem var frábært. Veðrið var ekki að vinna með okkur en við létum það ekki á okkur fá. Að kasta…Lesa meira

true

Ólafsdalshátíð verður haldin 16. júlí

Þrettánda Ólafsdalshátíðin í Gilsfirði verður haldin laugardaginn 16. júlí, glæsileg fjölskylduhátíð að vanda. Megindagskráin verður frá kl. 13 til 17. Meðal skemmtikrafta verða Lalli töframaður, Bjartmar Guðlaugsson og fleiri. Áhugaverð gönguferð með leiðsögn verður farin áður en formleg dagskrá hefst (um kl. 11). Ólafsdalshappdrættið verður á sínum stað, góðar veitingar, Erpsstaðaís, handverksmarkaður, hestar fyrir börnin…Lesa meira

true

QR kóði fyrir Umhverfingu og upplýsingar í Árbliki

Búið er að gefa út QR kóða þar sem finna má leiðarvísi fyrir væntanlega stórsýningu um Dali og Vestfirði, en listsýningin nefnist Nr4 Umhverfing. Skessuhorn hefur fjallað um sýninguna fyrr í sumar, en hún verður opnuð 2. júlí næstkomandi. „Þó að leiðarvísirinn sé ekki fullkominn ennþá, þá er þegar hægt að sjá einhvern hluta hennar…Lesa meira

true

Arkþing sigurvegari í hönnunarsamkeppni um Breið á Akranesi

Í dag var við hátíðlega athöfn í Hafbjargarhúsinu á Breið á Akranesi kynnt niðurstaða í veglegri hönnunarsamkeppni á um ellefu hektara svæði á Breiðinni. Það er Breið þróunarfélag sem hélt utan um samkeppnina í samvinnu við Brim hf og Akraneskaupstað. Dómnefnd hefur nú metið þær 24 tillögur sem sendar voru inn til keppni, en á…Lesa meira

true

MB styrkt til þróunar námsefnis fyrir STEAM

Menntaskóli Borgarfjarðar hlaut á dögunum veglegan styrk til þróunar námsgagna fyrir verkefnið sem í daglegu tali er kallað STEAM. Stóru málin í heiminum, eins og fjórða iðnbyltingin, umhverfismálin og heimsmarkmið SÞ um sjálfbæra þróun ásamt lýðfræðilegum áskorunum, kalla á aukna nýsköpun á öllum sviðum mannlífs og samfélags. Stefna íslenskra stjórnvalda í menntamálum og nýsköpun til…Lesa meira

true

Bláfáninn blaktir að nýju við hún á Langasandi

Í morgun var Bláfáninn dreginn að húni við Langasand á Akranesi, tíunda árið í röð. Bláfáninn er alþjóðlegt umhverfismerki sem veitt er smábátahöfnum, baðströndum og þjónustuaðilum í sjávarferðamennsku fyrir árangursríkt starf að umhverfismálum. Tilgangur verkefnisins er að stuðla að verndun á lífríki haf- og strandsvæða, draga úr umhverfisáhrifum, bæta öryggi og efla umhverfisvitund. Bláfáninn er…Lesa meira

true

Veiðin byrjuð á Arnarvatnsheiði

Opnað var fyrir veiði á sunnanverðri Arnarvatnsheiði um miðjan júní. „Það er alltaf gaman að fara á Arnarvatnsheiðina, enda farið þarna æði oft og þetta er skemmtilegt,“ sagði Ingólfur Kolbeinsson þegar tíðindamaður Skessuhorns heyrði í honum, nýkominn á heiðina og strax kominn með fína veiði og væna fiska. „Já, það var góð veiði; bleikja og…Lesa meira