Fréttir

true

Íbúafundur á Akranesi um framtíðarsýn á Breiðinni og Running Tide

Í gær var haldinn íbúafundur þar sem framtíðarsýn fyrir Breiðina og fyrirtækið Running Tide var kynnt, en það er að hefja starfsemi á Akranesi og hefur þegar auglýst eftir starfsfólki. Fundurinn var haldinn í Bíóhöllinni og var ágætlega sóttur. Framsögu höfðu auk Sævars Freys Þráinssonar bæjarstjóra; Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims, Marty Odin stofnandi Running Tide…Lesa meira

true

Írskir dagar á Akranesi hefjast á morgun

Á morgun, fimmtudag, hefst dagskrá bæjarhátíðarinnar Írskra daga á Akranesi. Búast má við líflegri stemningu næstu daga, en hátíðin stendur til sunnudags. Í boði á morgun eru m.a. myndlistarsýningar, grillveisla Húsasmiðjunnar og sundlaugapartý, en ýmsir viðburðir verða um allan bæ fram á sunnudag. Gera má ráð fyrir að fjölmennustu viðburðirnir verði brekkusöngur á Þyrlupallinum við…Lesa meira

true

Eldur kviknaði í gámi í Stykkishólmi

Slökkvilið Stykkishólms var ræst út í gær þegar eldur kom upp í gámi á svæði Íslenska gámafélagsins. Einar Þór Strand slökkviliðsstjóri segir í samtali við Skessuhorn að eldurinn hafi komið upp í pressugámi og telur hann að eitthvað hafa farið í gáminn sem ekki þoldi pressun, en gámurinn var merktur fyrir almennt sorp. Má því…Lesa meira

true

,,Hugurinn kemur manni áfram“

Miðvikudaginn 22. júní renndi Borgnesingurinn Þorsteinn Eyþórsson á hjólinu sínu inn í Borgarnes og lauk þar með því afreki að hjóla Vestfjarðahringinn á tíu dögum. Þorsteinn lagði af stað 12. júní síðastliðinn en í fylgd með honum var Anna Þórðardóttir eiginkona hans á húsbíl sem þau notuðu sem áningarstað. Þegar Þorsteinn, eða Steini eins og…Lesa meira

true

Rætt við Gunnlaug Jónsson knattspyrnu- og fjölmiðlamann

Margt áhugafólk um íþróttir og tónlist þekkir til Skagamannsins góðkunna Gunnlaugs Jónssonar. Hann var lengi í fremstu röð sem knattspyrnumaður, spilaði með ÍA, KR og sem spilandi þjálfari hjá Selfyssingum. En á þessum árum og nú í seinni tíð hefur hann í auknum mæli snúið sér að fjölmiðlun í útvarpi og sjónvarpi og sérstaklega við…Lesa meira

true

Mesta verðbólga í þrettán ár

Verðbólga mælist nú 8,8% og hefur ekki verið meiri síðan árið 2009. Verðbólga án húsnæðisþáttarins er 6,5%. Hækkun verðlags miðað við neysluverðsvísitölu er 1,41% síðasliðinn mánuð. Verð á mat og drykkjarvörum hækkaði um 0,8% (áhrif á vísitöluna 0,11%), kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 2,9% (0,56%) og verð á bensíni og…Lesa meira

true

Beinn og breiður vegur um hluta Melasveitar

Undanfarin misseri hefur Borgarverk unnið að endurbyggingu, breikkun, styrkingu og lögn bundins slitlags á um fimm kílómetra kafla af Melasveitarvegi, frá Bakka að svínabúinu á Melum. Við Mela tekur svo gamli vegurinn við, óneitanlega barn síns tíma, og er þannig í gegnum land bæjanna Melaleitis og Belgsholts og alla leið að gatnamótunum við Hringveginn í…Lesa meira

true

Fertugasti rampurinn á landsvísu vígður á Hvanneyri

Verkefnið Römpum upp Ísland teygði anga sína í Borgarnes og nágrenni í síðustu viku. Rætur verkefnisins liggja á höfuðborgarsvæðinu í verkefni sem nefndist Römpum upp Reykjavík en frumkvöðull þess var Haraldur Þorleifsson. Í Reykjavík var á síðasta ári settur upp 101 rampur til að bæta hjólastólaaðgengi. Það verkefni hefur svo undið upp á sig en…Lesa meira

true

Bátadagar verða á Breiðafirði í júlí

Félag áhugamanna um Bátasafn Breiðafjarðar á Reykhólum, gengst nú fyrir bátahátíð á Breiðafirði í fimmtánda sinn laugardaginn 9. júlí nk. Að þessu sinni verður farið til Hvalláturs þar sem rekin var afkastamikil bátasmíðastöð fram á sjöunda áratug síðustu aldar. Þar hefur teinæringurinn Egill verið geymdur allt frá árinu 1940 er hætt var að nota hann…Lesa meira

true

Afmælisrit Breiðfirðings komið út

Tímaritið Breiðfirðingur 70. Árgangur 2022 kom út um miðjan maí mánuð. Í því er að finna á annan tug greina eftir ýmsa höfunda, en allt efni á það sammerkt að eiga rætur við eða á Breiðafirði. Fyrsta hefti ritsins kom út vorið 1942 svo þetta rit er jafnframt 80 ára afmælisútgáfa. Ritstjóri og ábyrgðarmaður er…Lesa meira