Beinn og breiður vegur um hluta Melasveitar

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Undanfarin misseri hefur Borgarverk unnið að endurbyggingu, breikkun, styrkingu og lögn bundins slitlags á um fimm kílómetra kafla af Melasveitarvegi, frá Bakka að svínabúinu á Melum. Við Mela tekur svo gamli vegurinn við, óneitanlega barn síns tíma, og er þannig í gegnum land bæjanna Melaleitis og Belgsholts og alla leið að gatnamótunum við Hringveginn í landi Fiskilækjar. Nú eru framkvæmdir vel á veg komnar við nýja veginn, en upphafleg verklok áttu einmitt að vera 30. júní. Búið er að leggja bundið slitlag og er yfirborðið þessa dagana nokkuð laust í sér og því ástæða til að aka með gát. Á meðfylgjandi mynd er horft vestur eftir nýja veginum og í áttina að Eystra Súlunesi. Á myndinni sést vel hvernig nýir vegir, gerðir eftir stöðlum samtímans, eru breiðir og í raun glæsileg mannvirki.\r\n\r\nBorgarverk er einnig vel á veg komið með aðra stórframkvæmt í héraðinu; endurbætur á 8,5 km. veghluta Þverárhlíðarvegar frá Borgarfjarðarbraut ofan við Kljáfoss; um Hvítársíðu, Stafholtstungur og endað á móts við Högnastaði í Þverárhlíð. Þar voru verklok, samkvæmt útboði Vegagerðarinnar, 15. júlí nk.",
  "innerBlocks": []
}
Beinn og breiður vegur um hluta Melasveitar - Skessuhorn