
Þórunn Edda Bjarnadóttir vígði rampinn við Hvanneyri Pub sem er fertugasti rampurinn í Römpum upp Ísland. Ljósm. sþ.
Fertugasti rampurinn á landsvísu vígður á Hvanneyri
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Verkefnið Römpum upp Ísland teygði anga sína í Borgarnes og nágrenni í síðustu viku. Rætur verkefnisins liggja á höfuðborgarsvæðinu í verkefni sem nefndist Römpum upp Reykjavík en frumkvöðull þess var Haraldur Þorleifsson. Í Reykjavík var á síðasta ári settur upp 101 rampur til að bæta hjólastólaaðgengi. Það verkefni hefur svo undið upp á sig en Haraldur vinnur nú að því að rampa upp Ísland þar sem stefnt er að því að koma upp eitt þúsund römpum á landsvísu í samstarfi við sveitarfélögin. Öll sveitarfélög á landinu fengu boð um að taka þátt en Borgarbyggð stökk fyrst á vagninn af sveitarfélögum á Vesturlandi. Dalabyggð hefur einnig fagnað erindinu og vísað því til umsjónarmanns framkvæmda þar í byggð.\r\n\r\n<strong>Hjólastólaaðgengi misjafnt í Borgarfirði</strong>\r\n\r\nFimm rampar voru settir upp á tveimur dögum í Borgarnesi og á Hvanneyri í síðustu viku. Fertugasti rampurinn á landsvísu var vígður á Hvanneyri sl. fimmtudag við barinn Hvanneyri Pub. Haldin var stutt en hátíðleg dagskrá þar sem Sigrún Ólafsdóttir sveitastjórnarfulltrúi og Guðveig Eyglóardóttir forseti sveitarstjórnar tóku til máls og fögnuðu verkefninu. Sögðu þær að byggingar fyrri tíma kalli oft á miklar framkvæmdir til að bæta hólastólaaðgengi en þekkingarleysi væri oft ástæða hægrar þróunar og ítrekuðu mikilvægi þess að sækja sér þekkingu. Þórunn Edda Bjarnadóttir klippti svo á borða og vígði rampinn en hún notast við hjólastól í daglegu lífi og segir aðgengi fyrir hjólastóla í Borgarfirði vera misjafnt. ,,Aðgengið hefur verið allskonar. Það hefur snarskánað en má alltaf bæta. Það er orðin svo miklu meiri vitundarvakning í öllu í dag og einnig erum við sem þurfum á betra aðgengi að halda orðin meira áberandi í samfélaginu og þá sér fólk í hvaða hindrunum við erum að lenda. En það er alltaf rými til að betrumbæta,“ sagði Þórunn Edda.+\r\n\r\n<em>Sjá nánar í Skessuhorni sem kom út í dag.</em>",
"innerBlocks": []
}